Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júní 23, 2006

Fóstudagur kominn enn á ný

Jæja, þá er sumar ofnæmið búið að láta sjá sig, nefið mitt er bólgið og ég heyri ekki baun, með hrikalegar hellur...ekki gott mál.
Svo verð ég að vinna alla helgina....ekkert frí fyrir mig.

Ég er búin að róa mig aðeins niður síðan síðast, ætla bara að hafa áhyggjur af einu í einu...núna er það nefið og eyrun, já og þrýstingurinn sem er í öllu andlitinu...líður ekki neitt rosalega vel og tala hrikalega asnalega...but, anyway.......ég ætla að halda áfram að vinna...þýðir lítið að sitja á rassinum og gera ekki neitt.....

Svo segi ég bara Til Hamingju Magni frábært að íslendingur hafi komist í þáttinn.....Þarna sérðu bara Gulli minn, nú getur þú hætt þessari endalausu neikvæðni í garð íslendinga :)

Kveðja
Ég

sunnudagur, júní 18, 2006

Allt í steik

Ég ætla að byrja á því að segja "til hamingju með afmælið um daginn Gummi minn" Stundum getur maður gleymt svona hlutum....SORRY!

En 17.júní var í gær, þetta var svo sem ágætur dagur, ringdi eiginlega ekkert um daginn, ég var nú bara í hveró, ekki beint spennandi....enég fór nú með fjölskyldunni upp í sundlaug....svo fengum við rosa góðan mat um kvöldið...grilluð nautalund...getur ekki orðið betra...

Svo er það dagurinn í dag...ekki eins góður get ég sagt ykkur....Ég kíkti inn á bankalínuna hjá mér og sá að það var kominn inn greiðsluseðill fyrir skólagjöldunum, haldiði að gjöldin hafi ekki hækkað....úr 98 þús á önn upp í 114 þúsund...svo er verið að lengja skólann að auki í báðar áttir....ég er svo komin með nóg af þessum and**** skóla að það hálfa væri nóg....langar svo að segja up yours og hætta bara....en auðvitað er það ekki hægt....ég meina, það er auðvitað hægt...en hvað geri ég þá?
Stundum held ég að ég geti einfaldlega ekki meir...þetta er búið að vera endalaust vesen...úhhhh....ég er bara í frekar vondu skapi akkúrat núna...langar til brjóta eitthvað eða eitthvað....ARGH!!!!!!

Jæja...anda inn...anda út....
Adios í bili

föstudagur, júní 16, 2006

Föstudagur

Þá er kominn föstudagur, Get ekki sagt að dagurinn byrji vel, fékk hausverk í gær og auðvitað tók ég pillur fyrir því...en það dugði ekki betur en það að ég var með hausverk í alla nótt og núna er ég alveg að farast....ekki mikið einbeitning í augnablikinu.

17.júní á morgun....ætli ég verði ekki bara í Hveragerði þetta árið, get ekki sagt að það sé spennandi, hef aldrei fílað 17.júní í Hveró...ekki mikill metnaður sett í hátíðarhöldin. En Rósi og Edda koma nú örugglega til okkar og Enea litla líka þannig að við förum örugglega bara í pottinn og grillum eða eitthvað.

Ég er nú ekki alveg í besta skapi þennan morguninn, væri alveg til í að dópa mig upp að svefnlyfjum og leggjast undir sæng og sofa í allan dag...þar sem ég svaf nú ekki mikið í nótt, mér tókst nú samt að dreyma í nótt...auðvitað var ég með hausverk í draumnum, en það mátti nú búast við því.

Langar að skrifa miklu meira hér en ég er búin að nota delete takkann svo oft að ég nenni ekki meir...það kemur ekkert rétt út úr mér núna.

Njótið dagsins...ég ætla að gera það svona eftir bestu getu...allavega að þrauka daginn út.

Kveðja.....Ein í kvöl

þriðjudagur, júní 13, 2006

Roger Waters

Ég skellti mér á tónleika í gær, ég og pabbi kíktum á Roger Waters. Það var ekkert smá geðveikt, það leit samt út fyrir vesen í byrjun....það var ekki opnað fyrr en hálf sjö (átti að opna sex) og maður þurfti að standa í biðröð í grenjandi rigningu og roki...svo var önnur biðröð til að komast inn í salinn....svo klukkan átta þegar sjóið átti að byrja, þá var tilkynnt að þeir ætluðu að bíða í korter eftir einhverju fólki sem gat ekki mætt á réttum tíma....mín orðin vel pirruð og strax illt í löppunum. En svo byrjaði þetta......held að þetta hafi verið flottasta show sem hefur komið til íslands...eldglæringar, stjörnugos og fljúgandi geimfarar...og svo var tjald fyrir ofan hljómsveitina sem sýndi allskonar myndir á meðan....ég tala ekki um gítarleikarana...tveir gítarleikarar sem voru með sóló í kapp...geðveikt, annar þeirra..Dave Kilminster var ekkert nema geðveikur....en sem sagt...flott í alla staði...ég var að drepast í löppunum og bakinu og vil helst ekki standa svona aftur en ég sé alls ekki eftir að hafa farið!

Nú er ég svo þreytt að ég gæti alveg lagst niður á borðið og sofnað...en ég ætla nú ekki að gera það...fer bara snemma að sofa!

Have a nice day...svona loksins þegar það er þurrt úti :)

föstudagur, júní 09, 2006

Föstudagur

Jæja, loksins kominn föstudagur.....ég byrja að vísu að skúra í dag þannig að ekki fer ég snemma heim...og svo er ég að vinna alla helgina líka...ekki mikið frí hjá mér...en það góða við þessa helgarvinnu er að ég þarf ekki að vakna snemma...þarf ekki að byrja að vinna fyrr en tólf, þannig að ég get þó allavega sofið út...jei...

Það er Kvennareið hjá hestafélaginu á laugardag þannig að eftir vinnu þá þarf ég að leika gjaldkera, það er svo sem ágætt....fæ grillmat að launum :)

Ég er eiginlega komin á það, að ég þarf örugglega að skella mér til sólarlanda allavega í viku í lok ágúst....ég sé fram á það að ég verði svo rosalega uppgefin eftir sumarið.....þá er bara spurningin hvert á að fara...með hverjum og hversu ódýrt það verður :) Get nú ekki byrjað skólaárið drullu þreytt, þá nennir maður nú ekkert að leggja sig fram.
Ég á svo sem engan pening...en ég er nú að vinna ansi mikið í sumar...ég ætti að geta skrapað saman smá pening...vonandi.

Jæja...ég ætla að fara að vinna....díla við fúla menn sem vilja ekki láta mig fá teikningar sem mér ber að rukka.....alltaf er hausinn bitinn af greyið ritaranum.

Calimera....

miðvikudagur, júní 07, 2006

Löng helgi liðin og ekki mikið gert, ég fór í Keilu....ekkert sérlega góð í því! Svo datt leiksýningin niður því einn leikarinn þurfti að fara á spítala. Svo lá ég bara í leti alla helgina. Nú er stutt vika, ég verð nú bara að segja að henni gengur bara ekkert að líða....ohh well!

Það er nú svo sem ekkert að frétta af mér...en ég veit að ég er ekki svona "vakna klukkan sjö" manneskja, það ætti virkilega að banna þetta og setja í lög að allir mættu sofa til níu....ja...kannski yrði það erfitt fyrir fólk sem þarf að vinna 8 tíma á dag....en allavega, ekki meira um það.

Svo virðist sem það verði rosa stuð á Akureyri helgina 17. júní, ég auðvitað kemst ekki, en ég bið að heilsa þeim sem verða þar...vildi að ég kæmist með :)

Ég verð bara með fána og blöðru í Reykjavíkinni...og kannski candy flos....

Digitalið er loksins komið í Hveragerði, auðvitað er eitthvað vesen með það...en ég held að þetta bjargist.....bjargast...bjargist......segið þetta orð oft og þá missir það alla merkingu, gæti verið að tala eitthvað annað tungumál....vá...þyrfti kalt vatn framan í mig núna.....

1, 2 og bingó.........farin aftur að vinna!

Kveðja
Heiða

fimmtudagur, júní 01, 2006

Alveg að koma löng helgi!

Það er að koma löng helgi og ég er í fríi alla helgina, getur einfalldlega ekki verið betra :)

Ætla að fara í Reykjavíkina og vera þar yfir helgina, þannig að ef einhver vill gera eitthvað með mér um helgina þá endilega hringja í mig ;)

Er að fara með vinnunni í keilu og í leikhús á föstudag, það ætti að vera gaman.

Svo er Lilja mín komin heim, jei....hlakka til að hitta þig og sjá allar myndirnar..já og til hamingju með starfið...

Vá, ég er alveg tóm núna....það er reyndar eitt sem er alltaf í hausnum á mér núna, veit ekkert hvað ég á að gera í því...eða hvort eitthvað sé hægt að gera í því. dem...verð að hætta að hugsa svona mikið...

Hafið það gott um helgina...vonandi skrifa ég eitthvað fljótlega sem fólk nennir að lesa.

Knús frá mér!