Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júlí 30, 2004

Ég gefst upp...ég orka þetta einfalldlega ekki lengur, það er takmarkað hvað er hægt að sjúga orkuna úr manni...maður þolir þetta ekki endalaust!
Ég get ekki meir.
Svo vantar manni að losa um...henda öllu þessu slæma út og byrja upp á nýtt...en það er bara ekki svo auðvelt...því maður ræður ekki hvenær er losað! Svo þegar líkaminn ákveður að nú sé nóg komið og komið að góðri losun þá verður hugsunin að stoppa það af því umhverfis aðstæður leyfa það ekki og þá lokast fyrir aftur og nýr bunki fer ofan á þann fyrri...þá verður ennþá meiri losun næst...en hvenær verður það....kannski kemur svo að því að bunkinn verður orðinn svo stór að það verður losun hvað sem hugurinn segir og þá lítur maður náttúrulega út fyrir að vera geðveikur! Kannski er það þannig sem fólk endar á Kleppi.

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Nýjar myndir :)

Ég er alltaf að heyra um fleiri og fleiri sem ætla til eyja...getur ekki klikkað!
Er búin að redda mér fríi í báðum skúringarjobbunum mínum svo ég verð bara að vinna til fjögur á morgun og svo bara on to eyjar!

Vorkenni samt þeim sem ætluðu með flugi frá bakka í dag...ekkert flogið í þessu veðri og spurning hvort það verði nokkuð flogið...kannski annaðkvöld...ég held mig við veðurspána á Vísir.is hún er miklu skemmtilegri en sú á mbl.is!

miðvikudagur, júlí 28, 2004

Jæja þá er maður bara að verða tilbúinn í slaginn...keypti mér stígvél í gær....hef ekki átt stígvél síðan ég var lítil...þau eru voða flott...rauð með reimum og svo fylgdi refnhlíf með...ægilega smart...svo eru vínkaupin næstum búin...og þá er maður bara good to go!

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Stundum líður mér eins og öll síðustu ár skipti akkurat ekki neinu máli! Að maður sé búinn að missa allt sem maður hélt að maður hefði og þá þarf maður að hugsa hvernig maður heldur áfram...þarf maður að fara að byrja upp á nýtt á öllu saman....en málið er að það er ekki eins auðvelt að byrja aftur eins og það var í denn!

En það góða er að þjóðhátíð er í nánd og ég segi bara skítt með þessa rigningu...það verur bara samt geðveikt stuð!

Óskir um góða heilsu yfir Versló
have a nice day!

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Ég held að maður hugsi of mikið!

Ég get endalaust velt hlutunum fyrir mér...á ég að gera þetta eða hitt eða er þetta skynsamlegt eða á ég að bíða eftir þessu eða á ég á ég á ég!
Hausinn fer stundum í marga hringi og samt kemst ég aldrei að niðurstöðu!
Maður er alltaf að bíða eftir einhverju rosalegu, einhverju sem blows you off your feet, En það virðist aldrei koma. Á maður að sleppa þessum draumum og finna sér eitthvað traust og gott eða á maður að bíða eftir einhverju sem kannski kemur aldrei. ég veit ekki, svei mér þá. Það er alltaf verið að segja mér að ég lifi í draumaheimi, ævintýraheimi sem er ekki til. En er eitthvað að því að vilja eitthvað sem fyllir mann af svo miklum krafti og hamingju að maður getur ekki annað en grenjað af hamingju? Er eitthvað að því að vilja vera eins hamingjusamur og maður mögulega getur, Kannski er ég með óraunhæfar kröfur...en hvar á maður að slá af? Hvað á maður að sleppa. Eru allir að sætta sig við minna en fólk vill eða eru virkilega einhverjir sem fá að lifa í ævintýraheimi. Ef svo er þá segi ég bara, afhverju ekki ég? Hlutirnir geta verið svo flóknir að maður veit ekki í hvorn fótinn maður á að stíga í. Maður verður nú líka að gefa hlutunum séns...aldrei að vita að eitthvað sem maður hélt að myndi ekki verða endi á því að verða draumaheimur. Svo er manni sagt að fylgja hjartanu, en ég er ekki viss um að ég treysti hjartanu...eða kannski veit ég bara ekki hvað hjartað er að segja...ég skil ekki svona hjartamál...kannski er það bara hjartað og höfuðið sem er að berjast og ég veit ekki lengur hvort er að tala og hverju ég á að fylgja...kannski held ég að ég sé að fylgja hjartanu en þá var það höfuðið allan tíman...og kannski er bara hvorugt að tala og ég sé að fylgja einhverju allt öðru! Djí...svona er að vera ég..hugsa bara í hringi og veit svo endanum ekki hvað í ósköpunum ég var að hugsa um til að byrja með

ohhh lífið getur verið alltof erfitt og alltof flókið!

Jæja ég ætla að engjast í friði í mínum hugsunum

have a nice day og hugsið ekki of mikið...it only leads to truble and seat w...
nei kannski ekki

bæjó í bili

mánudagur, júlí 19, 2004

Þá er maður komin heim frá Vestmannaeyjum. Ferðin gékk bara furðu vel, var líka með herbergi þannig að ég svaf bara báðar leiðir...það var mjög fínt og ætla að gera það aftur um versló. Ég kíkti aðeins á dalinn....hann er að taka á sig fína mynd...öll tjöldin að rísa og fint!

Brúðkaupið gékk líka vel, dagskráin var kannski aðeins of löng en loks einhverntíman eftir miðnætti þegar við gátum loks staðið upp þá var mikið dansað og tjúttað, fór ekki að sofa fyrr en um hálf sex um morguninn...alveg ótrúlegt því ég er vön að vera svo þreytt og farin að sofa um tvö leytið...en nei...ég var bara í rosa fjöri! Svo náttúrulega lenti maður í smá ævintýri (ekki meira um það hér)

Svo var maður vakin upp klukkan níu á sunnudagsmorgninum og dregin í skoðunarferðir um eyjuna...ég náttúrulega dauð úr þreytu...en það var nú samt mjög gaman að keyra um hraunið og svoleiðis.....þurfti svo að skúra upp á bæjó þegar ég kom heim um kvöldið þannig að ég var mjög fegin þegar ég fékk loks að leggjast upp í rúm og fara að sofa....ömurlegt að þurfa svo að vakna klukkan sjö í morgun...ekki alveg það sem mig langaði að gera.

En nú ætla ég að fara að vinna! Get ekki beðið eftir Versló...það verður æðislegt fjör ;)


Love ya all
Heiða


What Drink Are You?

föstudagur, júlí 16, 2004

Föstudagur enn og aftur, mikið er það nú gott.
 
Ég þoli einfalldlega ekki að vakna klukkan sjö á morgnana...finnst alltof gott að sofa.  Ég þarf nú samt að vakna snemma á morgun (samt ekki klukkan sjö) og fara til Vestmannaeyja.  Er að fara í enn eitt brúðkaupið, frænka mín er að gifta sig. 
 
Svo bíður maður bara eftir því að komast á Þjóðhátíð, get ekki beðið, það verður geggjað stuð.
Jæja, ég þarf að lækna stússast...ekkert nýtt við það svo sem...alltaf hjá einhverjum læknum. 
 
have fun

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Jæja, þá er hún Hulda vinkona mín gift kona...brúðkaupið gékk mjög vel og allir voru hrifnir af söngnum. Stundum líður manni bara hreinlega illa að vera einhleypur, ég mein, þarna var ég í brúðkaupi og var sett á borð með afanum og ömmunni og svo þegar allir áttu að dansa saman þá fyrir utan tvær eldri konur og tvo unglinga þá var ég sú eina sem var ekki með partner....maður þyrfti að hafa einn á leigu fyrir svona veislur.

En annars var helgin bara fín og nú er það bara að lifa út þessa viku. Fer til eyja um næstu helgi, í eitt brúðkaupið enn...sem ég verð án efa ein aftur, þannig nú er það bara að koma sér í herjólfar gírinn...kvíður ýkt fyrir (ég verð nefninlega svo veik), svo fer maður lít á þjóðhátíð svo það verður enn ein herjólfarferðin. ohh well...allavega á þjóðhátíð þá hlýt ég að finna einhvern sem er eins pathetic og ég!

Ég ætla að skella mér í bæjar ferð í kvöld..ætla að hitta hana Lilju mína, það verður gott að gera eitthvað, borða góðan mat og eitthvað svoleiðis!

en back to work

kveðja
Heiða

föstudagur, júlí 09, 2004

Jæja, þá er enn einn föstudagurinn genginn í garð. Ég er að fara í brúkaup á morgun og ég á að syngja í kirkjunni. ég er nú samt alveg agaleg...ég á eftir að kaupa gjöf og er að vinna til sex...djí...þetta verður eitthvað skrautlegt. En eftir þetta brúðkaup þá er söngurinn búinn þetta sumarið. ég er að undirbúa mig fyrir Vestmannaeyja ferð, þarf að fara þangað í brúkaup 17 júlí og svo ætla ég á þjóðhátíð, það þýðir fjórar ferðir í Herjólfi. Það er kannski bara best að byrja að æla strax! Ég ætla nú samt að fá mér koju og reyna að sofa þessar ferðir....

Ég fór á myndlista sýningu hjá systir hennar ömmu í gær. Dætur hennar héldu þessa sýningu í tilefni af brúðkaupsafmæli hennar. Þau hjónin eru búin að vera gift í sextíu ár...það er sko ekki algengt nú til dags. Þau komu meira að segja í fréttunum og hún sagðist bara vera enn skotin í honum, ekkert smá sætt! Manneskjan er búin að vera að mála allt sitt líf, alveg rosalega flottar myndir og þetta var fyrsta sýningin hennar.

En ekki meira í bili
Góða helgi allir saman!!!

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Fimmtudagur til.....ég veit ekki...til hvers eru fimmtudagar, mjög tilgangslaus dagur finnst mér og það er heldur ekkert sjónvarp á fimmtudögum...allavega ekkert sem er vert að horfa á!

Vikan er búin að vera frekar brjáluð...vinn alltof mikið fyrir letidýrið mig...ég meina þrjár vinnur....en ég gerði víst sjálfri mér þetta...get ekki kvartað...en ég er samt þreytt og verð það út mánuðinn.

Ég skellti mér nú samt á forsýningu á Spiderman um daginn....hún er bara mjög góð, alveg spurning hvort hún sé betri en sú fyrri! Allavega mæli ég alveg með henni.

En ekki meira í bili...verð að vinna
bæjó í bili

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Ég setti inn myndir frá ferðinni!

Ekk örvænta þótt að þið sjáið ekki allar myndirnar þegar þið kíkið á albúmið því myndirnar sjást vel ef þið klikkið á þær...

seeyaa later

föstudagur, júlí 02, 2004

Jæja! loks skrifar maður eitthvað hér...
Blogg letin alveg að drepa mann!
En ég er komin heim úr þessari æðislegu hringferð....það var nú alveg geggjað, set inn myndir um leið og ég nenni...það er svolítið mikið að gera hjá mér! Nú er ég byrjuð að vinna á þremur stöðum þannig að ég hef varla tíma til að sofa...en þetta kemur allt með kalda vatninu!
Ég ætla líka að setja inn ferðasöguna...svona þegar ég hef aðeins meiri tíma!

Nú er fyrsta helgin í júlí að renna upp...og viti menn...ég er ekki að fara neitt...það verður nú samt eitthvað stelpu djamm...með mágkonunni og fleirum...það verður örugglega fjör.

Alveg týpískt...Stóri bróðir minn er svona maður að hann ákveður að gera eitthvað og hann gerir það bara...eins og hann segir "nú ætla ég að djögla" eða "nú er ég hættur að vera feiminn" eða "nú ætla ég að skíða með alveg rosa flottum stíl" og svo gerir hann það bara...hann tók þátt í siglingarkeppni í gær og hann hefur nota bene aldrei stigið á svoleiðis bát og viti menn...hann bara vann keppnina...alveg ótrúlegt!
En annars, til hamingju með þetta Rósi bró!

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað að viti

Góða helgi allir saman og ekki fara ykkur að voða í útilegunum!!