Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, janúar 30, 2006

Góðan daginn

Þá er næsta helgi plönuð, Ég ætla að kíkja á Snúlla, þar sem Hitakútur ætlar að spila....ég get svarið það, maður er farinn að hljóma eins og versta grúbbía....ohhh well, það verður bara að hafa...ég setti líka link á þá hér til hliðar, svo það sé hægt að fylgjast með drengjunum :)

Annars er bara allt fínt að frétta af mér...alltaf brjálað að gera í skólanum, hef varla tíma fyrir nokkuð annað.

Þar sem ég er í skólanum núna þá ætla ég ekki að segja meira en ég skal reyna mitt besta að vera duglegri að blogga...ég er búin að vera alltof léleg í þessu...þarf að hugsa um eitthvað sniðugt að segja....

Well...meira síðar
túdelú

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Allt byrjað á ný!

byrjuð í skólanum og hin venjulegu áhyggjuefni búin að poppa upp eins og venjulega. Ég er búin að taka að mér aðeins meiri vinnu, verð að vinna alla miðvikudaga og sunnudaga og svo annanhvern laugardag, verð víst að gera eitthvað ef ég ætla að borga þennan fína bíl sem ég keypti mér.

Verð samt að segja að ég er komin með hreint og beint ógeð á skóla, mér finnst eins og þetta taki engan enda og svo endar maður með ekkert nema feita skuld á bakinu, ohh jæja, þýðir víst ekkert að væla um það.

Stundum held ég að ég sé alveg clueless, skil hvorki upp né niður.

Jæja, ég ætla að reyna að læra eitthvað smá áður en ég skelli mér í skólann

Adios

föstudagur, janúar 06, 2006

Það væri gaman ef einhver myndi svara þessum spurningum :)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu skotinn í mér ?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.!
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Gleðilegt ár

Jæja, þá er komið árið 2006, það má alveg segja að árið hafi verið sprengt upp hér í Hveró, þar sem flugeldasalan sprakk í loft upp, ég sá þetta allt gerast út um gluggan hjá mér.....alveg ótrúlegt. Engin brenna og engin flugeldasýning þetta árið...well...ef bruninn er ekki talinn með, Hitakútur mætti samt á ballið, ég var nú ekki að nenna út eftir miðnætti en Gulli minn er alltaf svo duglegur að draga mig út, sé nú ekki eftir því....það var nú bara helv.... gaman á ballinu.

Án þess að segja of mikið þá er alltaf einn hlutur sem gerist um hver jól og áramót og þetta árið var nú ekkert öðruvísi.

Ég ætla nú ekki að strengja nein áramótaheit....ég stend hvort sem er aldrei við þau.

Hafið það gott
bæjó