Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, júní 30, 2005

þá er búið að breyta miðanum...Inga kemur með...Gummi ætlar líka með...þannig að það ætti að verða heljarinnar fjör hjá okkur! Svo lengi sem fólk man að þetta er mín ferð og ég ekki skilin útundan....hehehe nei, nei, það verður voða gaman...Gummi lofaði að stinga sér með mér í öldurnar og við ætlum í rennibrautagarð...þá er ég ánægð ;)

Ohh...ég vildi að það væri ekki svona langt í þetta....það versta við þetta er að loks þegar kemur að þessu þá er sumarið eiginlega búið og ég þarf að mæta í skólann daginn eftir að ég kem heim...buhu! Skóli sucks

Ætla að skella mér á War of the worlds í kvöld (vonandi í lúxus) og svo ætla ég í nudd á morgun...komin tími til þess að þreytan og stressið sé nuddað úr mér,

Helgin verður svo fín....ætla að njóta þess að vera heima...fara í pottinn og grilla! Gulli lofaði að vera með mér...en greyið getur bara horft á pottinn...fer ekki mikið í vatn svona brotinn!
Þú hefur alla mína samúð Gulli minn :)

Svo er alveg spurning hvort fólk vilji ekki koma til mín á laugardagskvöldið og fá sér smá grillmat ;)

Ég hef reynt að hugsa ekki of mikið undanfarið.....held að mér líði ágætlega, en það gæti bara verið dofi....fór næstum yfir um í vor og núna get ég einfalldlega ekki meir þannig að ég er orðin dofin.....það er svo fyndið þegar fólk kemur með töfralausnir og segir að þetta sé ekkert mál....bara redda þessu...já, svona lausnir eru ágætar þegar maður talar um það...en það er bara ekki svo auðvelt að BARA gera hlutina....já já búa bara til pening hér og klára þetta bara þarna og gera þetta bara svona.....málið er bara ekki svo auðvelt...ég veit ekki hversu oft ég hef fengið svona ljósaperu í hausinn og ljósið kviknar og ég tek ákvörðun (sem er ekki svo auðvelt) en það er bara einhver eða eitthvað sem er í vinnu við það að brjóta perurnar mínar....ég á ekki það margar á lager!

En nóg um það...helgin á að verða skemmtileg og hananú!

sjáumst síðar.....

þriðjudagur, júní 28, 2005

Það er skrýtið hvernig hlutirnir breytast!

Gulli komst inn í Háskólann í Reykjavík.....TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ. Alveg frábært að vera ekki með stúdentinn og komast inn í fyrstu tilraun...aftur á móti þá þarf hann að byrja í skólanum á sama tíma og við ætluðum út...buhu.... Til allrar hamingju var hún Inga svo góð að vilja koma með mér...sem þýðir að ég þarf ekki að fara ein.

Annars er allt ágætt að frétta, búin að fara til Hjartalæknis útaf blóðþrýstinginum hjá mér og nú eru einhver sýni í rannsókn til að útiloka einhverja sjúkdóma.... en þetta gæti líka verið útaf áhyggjum og stressi, ég var nú búin að tala um að ég mundi enda á gólfinu með taugaáfall, kannski er það ekki langt undan!

jæja, ég ætla að reyna að vinna eitthvað...verð að hafa góða ástæðu fyrir því að vakna svona snemma......

mánudagur, júní 20, 2005

Langa helgin búin....buhu!

Helgin var nú bara alveg ágæt, fyrir utan smá kveisu þá get ég ekki mikið kvartað. Bíllinn minn missti sig alveg og ákvað að vera með læti...öskraði alla leið til Reykjavíkur, en það er alltaf gott að þekkja góða bílalækna og nú er hann orðinn þægur greyið!

Foreldrarnir eru svo að fara til Spánar á fimmtudaginn sem þýðir að ég hef stóra stóra húsið útaf fyrir mig í tvær vikur...það verður voða næs.

fimmtudagur, júní 16, 2005

Löng helgi framundan...JEIIII

ohhh það verður svo gott að fá svona langa helgi...samt brjálað að gera, er að fara í útskriftarpartý í kvöld og svo er ég boðin í partý á morgun líka. Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera á 17. Júní....sjá til hvað er að gerast í Hveró....ekki það að ég búist við miklu...hefur verið frekar dauft síðustu ár. En alltaf er gaman á 17. júní, vil alltaf verða lítil stelpa aftur :) Ég get ekki gert að því en ég elska svona hátíðir þar sem allir brosa, syngja og allir eru bara í rosa góðu skapi, líður þá eins og allt verði kannski bara allt í lagi og ég þarf ekki að hafa áhyggjur lengur....áhyggjurnar koma svo strax daginn eftir en svona rétt á meðan þá líður mér rosa vel ;)

Ég ætla að skemmta mér vel um helgina og ég bið ykkur um að gera hið sama...eins og hún Píla Pína sagði einhverntíman:

"dansið og verið glöð, etið og verið glöð, syngið og verið glöð"

fimmtudagur, júní 09, 2005

Alveg að koma helgi, enn hvað það er gott...hlakka voða mikið til þess að sofa út!
nýjustu fréttir ÉG ER AÐ FARA TIL KRÍTAR, ohh, það verður yndislegt, tvær vikur í sólinni og á ströndinni....ég get ekki beðið!

Ég og Gulli ætlum að skella okkur....ég er bara komin strax í frí í huganum, þarf samt að bíða þar til í lok ágúst!

helgin verður örugglega mjög róleg, ég þarf samt að vera gjaldkeri í grilli hjá hestafélaginu á laugard. Það er svo sem alveg ágætt, fæ góðan grillmat og svoleiðis.
Aftur á móti verður næsta helgi (sko eftir þessa) frekar busy! tvö partý...16. og 17. júní.....hæ hó jibbý jei og jibbý jei!

fór í bíó í gær með Lilju og Kötu, Brad Pitt og Angelina klikka sko ekki, ég get alveg sagt það...

jæja, ég ætla að gera eitthvað að vita svona rétt síðustu mín. þarf svo að fara að skúra...alltaf sama sagan....en það er bara gjaldeyrinn minn

bæjó í bili
Kveðja
Heiða (aðeins búin að missa vitið og týna sjálfri mér og....djí ég ætti að fara að sofa núna....nei kannski ekki.....æi......bæjó)

fimmtudagur, júní 02, 2005

jæja, nú er fokið í flest skjól!

ef þið hafið einhverntíman heyrt að maður sé aldrei of gamall til að læra þá skuluð þið gleyma því hið snarasta.....nú er maður orðinn of gamall 25.ára....ég hélt alltaf að maður væri ekki gamall þegar maður væri tuttugu og eitthvað en nú er ekki hægt að fara í tónlistarskóla eftir 25.ára aldur.....þar fara líka öll mín áform þar sem ég ætlaði að hætta í LHÍ og klára í Tónó....en þar sem ég er svo heppin að vera 26 ára þá fæ ég ekki inngöngu....þannig að ég segi bara mína uppáhalds setningu

THIS SUCKS.

miðvikudagur, júní 01, 2005

Góðan daginn!

ég er ekki manneskja til þess að vakna svona snemma á morgnanna, ég vakna voða hress og svo um tvö leitið þá er ég alveg að sofna, hrikalegt....vinnan gengur bara fínt hérna upp á Selfossveitum, þó að ég er nú meira að vinna fyrir Árborg þessa dagana, fæ kannski að sökkva tönnunum í nokkra reikninga í dag!

Svo byrja ég að skúra í dag....alltaf þarf maður að taka að sér meiri vinnu, á hverju hausti segi ég að nú ætli ég aldrei að skúra meir...en viti menn...næsta sumar er ég byrjuð með skrúbbinn!

Ég er búin að ákveða að fara til útlanda í sumar, veit ekki alveg hvenær eða hvert en það er nú bara minni háttar mál......hehehe

Svo er ég svona eiginlega búin að ákveða að hætta í listaháskólanum!
maður verður víst að taka ákvörðun svo að nú ætla ég að reyna að gera það. Spurning hvað tekur við, ætli ég fari ekki bara aftur í Tónó og klára framhaldsstigið og taka svo burtfarapróf.....æ...það kemur allt í ljós!

hafið það gott í dag....ég ætla að vinna smá og fá svo dýrindis grill þegar ég kem heim!

hafið það gott í dag