Lífið er!

Eða hvað!!!!

sunnudagur, mars 26, 2006

Frábært kvöld í gær

Helga, Árni, Inga, Gummi og Gulli komu í heimsókn til mín og við kíktum svo á Hitakút á Snúlla, auðvitað voru þeir strákar frábærir að vanda...svolítið troðið á staðnum....strákar, þið verðið bara að spila á örkinni næst!!

Svo vantar mig ferðafélaga 4-10 maí, það gengur eitthvað brösulega...Inga mín, ætlar þú að koma með mér?
Maður verður nú að reyna, ég segi nú ekki annað.

Svo er ég að fara á vorfagnað hjá Bootcamp á föstudaginn, það verður örugglega interesting...hlakka samt svolítið til, það verður fínn matur og skemmtilegt.

En annars er nú ekki mikið að frétta af mér....er að reyna að stressa mig ekki upp útaf skólanum, gengur svona þokkalega...hef allaveg náð að líða mjög vel um helgina, svolítið eins og maður sé að finna sjálfan sig aftur...ég er búin að vera svo lengi í eigin heimi....búin að vera eitt basketcase útaf skólanum...á örugglega eftir að halda því áfram...en samt náð að slaka aðeins á...vildi samt óska þess stundum að ég hefði aðeins meiri kjark....því að fólk les ekki hugsanir, þótt að maður mundi vilja að sumir gerðu það.

Ball 7.apríl á örkinni, allir að mæta þangað!!!!!!

Hafið það gott

laugardagur, mars 25, 2006

Þá er kominn laugardagur!

Ég er að drukkna í ritgerð...þarf að skila 10bls ritgerð á föstudagin, halda fyrirlestur og fara í hlustunarpróf....verð rosa fegin þegar föstudagurinn er búinn, en samt er þetta góður dagur, ég er bara sátt í dag...verð bara að segja það, er að fara á Hitakút í kvöld, góðir vinir ætla að koma með mér og ég er búin að ákveða að fara ekki í panik fyrr en eftir helgi....þýðir ekkert að æsa sig strax...er nú bara búin með eina blaðsíðu...but...þetta reddast örugglega einhvernveginn...svo er ball á örkinni þann 7.apríl...held örugglega að í svörtum fötum eigi að spila þá, maður verður nú að kíkja á það :)

Var að hugsa um að reyna að komast til Parísar 4-10 maí...hef reyndar engan til að fara með mér...en ég gefst ekki upp

Gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta
og aðeins betur, en það er það sem þarf!
Handboltinn lengi lifi......

Hafið það gott á þessum blíðviðris laugardegi...njótið þess að vera til :)

þriðjudagur, mars 21, 2006

Jæja, þá er loksins að koma að því

Snúllabar á laugardaginn...allir að mæta, Hitakútur er auðvitað að spila, og auðvitað verð ég á staðnum!

Annars er ekki mikið að frétta af mér, ég er alltaf í bænum núna, svona á meðan amma er í útlöndum, ég verð nú samt að segja að það er alltaf best að búa í Hveragerði, ágætt svo sem að þurfa ekki að keyra á milli á hverjum degi, en Hveró er alltaf best :)

Helgin var rosa fín, fórum í bústað, það var slakað á og étið jello....og kvöldmaturinn á laugardeginum.....vá ég slefa ennþá, rosa góður, nautalundin er alltaf best.

Jæja, ég er farin að læra....Sjáumst á laugardaginn ;)

miðvikudagur, mars 15, 2006

Hausverkur

Er að vinna í dag og ég er með brjálaðan hausverk...á engar pillur eða neitt...verð bara að þjást :(

Er alveg að verða búin að horfa á seríurnar mínar, á tvo þætti eftir af Angel, mér finnst bara svolítið gaman af þessum þáttum, verð nú bara að segja það, nú klægjar mig í puttana, langar að kaupa meira...en nei..skamm...má ekki eyða meiri peningum í bili...ég er búin að spandera alltof mikið.

Amma mín er að fara til USA þannig að ég ætla að búa í Reykjavíkinni næstu tvær vikur, það verður voða ljúft.

Vildi óska þess að tvær Parkódín töflur mundu birtast hérna fyrir framan mig akkúrat núna......

sunnudagur, mars 12, 2006

Íslenskir karlmenn deita ekki!

Well, ég held að það sé ekki alveg satt....þegar ég var svona 16 til 20 ára þá var mér oft boðið á deit...fór þó nokkrum sinnum, en eftir það hefur varla nokkur maður boðið mér á deit... ohh well

Sunnudagur í dag, langar í lengri helgi, bara búin að vera að vinna og glápa á imbann, sem svo sem ágætt stundum....en næst þrjár helgar verða mega stuð...fullt að gerast ;)

föstudagur, mars 10, 2006

Jæja, kominn tími til að hætta að dreyma

Föstudagur og ég sit heima hjá Rósa bróðir og er að passa hana Eneu litlu.
Ekki mikið planað fyrir þessa helgi, verð að vinna alla helgina og svo bara...well ég hef ekki hugmynd.

Partýið hjá henni Lilju var algjört æði, rosa stuð.

Vá ég er ekkert smá tóm núna...ætlaði að skrifa eitthvað rosa mikið, en svo bara dettur mér ekkert í hug.
Allavega búin að taka 25 mars frá, Hitakútur er að spila á Snúlla...eins og ég hef alveg örugglega sagt áður...Ég ætla að reyna að draga sem flesta með mér þangað :)

Ég er nú oft að velta íslenskum karlmönnum fyrir mér, mjög furðulegir upp til hópa, hvað er þetta með þá og stelpur...ef einhverjir eru að lesa þetta þá kannski getið þið útskýrt svolítið fyrir mér....ég meina......er einhver þarna úti sem býður stelpum ennþá á deit, eða er það bara alveg búið? Þurfa stelpurnar að sjá um allt sjálfar? Flokkast eitt sms sem hljóðar svona "hæ hvað segir þú" sem boð á deit...eða er ég bara alveg orðin klikkuð...æi...ég skil bara ekki baun.....

Væri ekki æðislegt ef einhver mundi bjóða manni út (ekki með sms) og ekki vera með neitt ands***** vesen?

föstudagur, mars 03, 2006

Mig dreymdi draum í nótt
-sem ég vildi óska að hefði ekki verið draumur
-langaði ekkert til að vakna
-vona svo innilega að þessi draumur verði að veruleika

Rosalega er maður eitthvað vonlaus stundum!

miðvikudagur, mars 01, 2006

Jei

Ég er búin að fá seríurnar mínar....það er löng leið yfir atlandshafið en loks komust þær á leiðarenda...jís...ég verð sko ekkert skemmtileg næstu daga...á eftir að vera föst við imbann...ekkert jafnast á við vondar fallegar vampýrur (þá er ég að tala um Spike) hann er algjört æði.

Fullt af krökkum búnir að syngja fyrir mig í dag, rosa gaman að láta syngja fyrir sig :)

Hafið það gott í dag

Kveðja Heiða
í alveg rosa góðu skapi :)

Öskudagur!

Ég er að fara að vinna á eftir, það verður gaman að sjá hvort eitthvað af börnum komi til að syngja fyrir mig :)

Það lítur út fyrir að það verði fullt að gera í mars, Partý hjá Lilju á laugardaginn og svo Hitakútur 25.mars...ekki slæmt það...svo er aldrei að vita nema að maður gerir eitthvað fleira skemmtilegt.

Ég er ekki enn búin að fá seríurnar mínar....er að verða biluð á því að bíða...verð að fá smá vampýruskammt.

Vá...ég er alveg tóm núna....horfi bara á skjáinn og dettur ekkert í hug til að skrifa.

Allavega þá er rosa gott veður úti, kalt en rosa fallegt...Gulli, við ættum að vera að fara í smá íslandsferð núna.....verðum að halda áfram með ferðirnar bráðlega :)

Ég segi bara...
góðan öskudag
og verið nú dugleg að festa öskupoka á fólk