Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, október 28, 2005

ojj ojj ojjj....

Ógeðslegt veður....ég á að fara í masterklass á eftir...en það er alveg spurning hvort ég fari nokkuð í bæinn í þessu veðri...það er brjálað rok og snjókoma...maður sér varla næsta hús, hvað þá meira....og á maður svo að fara að keyra yfir heiðina...það er spáð um 22 metrum á sec í dag...ojj ojj ojj....Langar bara að sitja upp í rúmi...undir sænginni minni og glápa á vídeó eða eitthvað...eitthvað heilalaust allavega...og kannski háma í mig eitthvað góðgæti. Ekki slæmur svoleiðis dagur....en það verður að koma í ljós hvað gerist...hef til tólf til að ákveða mig.

Litli bróðir minn (sem er því miður orðinn stærri en ég) fór á halloween ball í gær...við skelltum honum í hvíta skyrtu og svartar buxur..svo átti hann þessa fínu dracula skykkju og svo máluðum við hann í framan eins og sannur Dracula...og vitiði hvað...hann vann verðlaun fyrir besta búninginn....æðislegt!

Svo er Halloween partý hjá skólanum mínum á laugardaginn...veit ekki hvort ég fer, þegar kemur að mér þá hverfur allt hugmyndaflug..alveg ótrúlegur fjandi það. :)

Annars er bara allt gott að frétta af mér...ekkert nýtt gerist svo sem..er bara í skólanum og hangi svo heima hjá mér....er að vísu komin í kór...bara svona rétt yfir jólin....fæ að syngja einsöng og dúett...það ætti að verða fjör.

Hafið það nú gott....ekki slasa ykkur á hálkunni og njótið lífsins...það gerir það víst enginn fyrir ykkur..........

þriðjudagur, október 18, 2005

Allt óákveðið!

Það er alltaf eins og lífið sé að koma aftan að manni!
Hvað á maður að gera....hvert stefnir maður? Er maður með einhverja stefnu....djíses...ekki hægt að vera í stórum pælingum núna...allt að verða vitlaust hérna í skólanum...einhverskonar busun í gangi...verð að kíkja á þetta...tala við ykkur seinna....

föstudagur, október 14, 2005

Það virðist sem það sé alltaf leiðinlegt veður....alveg ótrúlegt

Ég hef svo sem ekki mikið að segja í augnablikinu...ætti nú eiginlega að vera að læra en ekki að slæpast þetta....svona er maður nú duglegur...

Búin að vera með kvef í viku núna...er alveg að eipa á þessu.....

þriðjudagur, október 11, 2005

Þetta er miklu betra lyklaborð

Núna er bara kuldi og snjór í Hveragerði...alveg ótrúlegt hvað veðrið breytist fljótt hérna.
Fór í skólann í dag....kíkti á netið rétt áður en ég fór (um 12 leytið) til að athuga hvort einhver væri veikur...nei enginn veikur...ég fer í skólann og þegar ég mæti þar þá stendur að kennarinn minn sé veikur...svona fólk....þurfti að bíða í alveg þrjá tíma eftir næsta tíma...það á að setja svona lagað beint á netið, alveg ótrúlegt.

Gulli benti mér á eina staðreynd...ég hef aldrei verið með strák sem er eldri en ég....hef alveg haft tækifæri til þess en hef samt alltaf verið með yngri...afhverju er það? Get ekki alveg áttað mig á því...kannski er ég bara með svo mikla complexa að ég treysti mér ekki til þess að setja mig í hendur eldri manna....en aftur á móti með yngri.....þá ættu þeir eflaust að búast við meiru af mér...eða hvað....er þetta kannski einhverskonar Peter Pan sindrom eins og hjá henni Ingu minni! Ég veit ekki...get hugsað þetta í marga hringi, veit ekki hvort ég komist að einhverri niðurstöðu....ég meina, nú er ég farin að horfa á 22 ára stráka....jafnvel 21(fallegur dökkhærður Grikki með flottar mjaðmahreyfingar) Er eitthvað að því...er það ekki bara allt í lagi? Eða er ég bara ógeðsleg....ég meina, nú eru konur að giftast strákum sem eru 10 árum yngri...hversu miklu skiptir þá 5 ár?

Ég veit ekki.............................

mánudagur, október 10, 2005

Helgin lidin og ég ordin 27 ára gömul!

thetta var nú bara alveg ágætis helgi......fór á ball á örkinni med Gulla og ég verd bara ad segja ad ég skemmti mér alver rosa vel, fékk athygli frá 22 ára strákum upp í fertuga....minn vinsæll...... Mánar eru bara alveg frábær hljómsveit...gat dansad alveg fullt.
kíkti svo adeins á Snúlla á laugardeginum...tad var bara fínt...var samt frekar veik (hálsbólga og vesen) thannig ad ég fór bara snemma heim...kannski hefdi ég átt ad vera lengur.....passa upp á Gulla og svoleidis...hehehehe
En ég er ekki ad fíla thetta lyklabord hérna thannig ad ég ætla ad skrifa meira seinna

Kvedja Heida

miðvikudagur, október 05, 2005

Þetta er búið að vera furðuleg vika...

Ég var að pæla í að skemmta mér eitthvað í Hveró á föstud. nenni ekki að djamma í rvk. það er eitthvað ball á örkinni og það væri gaman að kíkja þangað...endilega þeir sem vilja komið með....væri svolítið gaman að safna liði :)

Ég þoli ekki hvernig hjólin eru orðin...reyndi að hjóla á hjólinu hans Valda...og mér leið eins og asna.....ekkert nema handbremsur...fullt af gírum og stýrið svo langt fram að maður hálf liggur....ég vil bara gamaldags hjól þar sem maður situr uppréttur......engir gírar (kannski bara tveir) og bæði handbremsur og fótabremsur...verð að hafa fótabremsur.....annars flýg ég bara af hjólinu...ekki að fíla þetta.

Jæja...ég verð að fara að klæða mig og svoleiðis...er að fara að syngja í jarðaför á eftir.......

Fjör á föstudaginn.....komið með...ef ballið er leiðinlegt þá förum við bara á gamaldags götufyllerí hehehehe.....