Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, maí 31, 2004

Kominn mánudagur og það er FRÍ...Þetta er yndislegt

Helgin var annars fín...Það er búið að mála pallinn svona súkkulaði brúnann...mjög girnilegur...var voða dugleg að mála...svo var bara slakað á eins og venjulega...gerðist bílstjóri í gær fyrir foreldrana og við skelltum okkur á nýja staðinn í bænum, Kaffi Kidda Rót, ekki mikið að gerast þar...en alltaf gott að komast út.

föstudagur, maí 28, 2004

Ég og pabbi minn skelltum okkur með vinnunni minni á Rómeó og Júlíu í gær....Þetta er alveg ótrúleg sýning...ég get ekki sagt annað...Ég segi bara, þið verðið að sjá þetta, fáið varla betri skemmtun...þá er það bara næsta stopp Edith Piaf, ohh maður er alveg kominn með leikhúsbakteríuna...æðislegt!!

fimmtudagur, maí 27, 2004

Húrra fyrir mér!!!!!

Nú er mér búið að takast það að detta tvisvar af hestbaki, með bólgna vör og marbletti út um allt...vei...eða þannig :/

miðvikudagur, maí 26, 2004

Enn einn vinnudagurinn búinn...alveg ótrúlegt að maður eyði lífinu í það að vinna...sumir vinna það mikið að þeir fá aldrei að njóta þess að lifa...hvað gerist þá...jújú...sá hinn sami á fullt af peningum en því miður er hann dauður og getur ekkert gert við þá! Ég meina...maður er í skóla og þegar honum lýkur þá tekur vinnan við....er þetta virkilega það sem við eigum að gera við lífið...Það er svo sem voða gott fyrir sálina að vinna...en maður verður að taka frí og leyfa sér að gera það sem maður vill gera....eins og að ferðast um heiminn eða hvað annað sem maður vill gera....just do it....segi ég bara....það er bara synd að lífið snúist eiginlega bara um peninga.

Ég pantaði tíma í nudd hérna í Hveragerði og vitiði hvað...ég þarf að bíða í heila viku eftir tíma...djí..ég þarf þá að vera hálf skökk í viku í viðbót!

Maður er strax farinn að hlakka til Versló....EYJAR here I come...alveg ótrúlegt hvað maður getur ekki fengið nóg....ef maður fer einu sinn fer maður alltaf sagði einn vitur maður einu sinni....það var sko orð að sönnu...ég held að ég sé búin að fara fimm sinnum og get ekki hætt..

mánudagur, maí 24, 2004

Stundum þarf ekki mikið til þess að maður fari að hugsa sinn gang.....kannski að það sé komið að vorhreingerningunni (djí hvað þetta er langt orð)

föstudagur, maí 21, 2004

By the way...er öll lurkum lamin eftir hestaferðina...

It's raining men....nei, kannski ekki alveg...en það rignir allavega. Ótrúlegt hvað getur rignt mikið á þessu landi. Er búin að belgja mig út af hamborgurum og svo verður bara gott imbakvöld í kvöld....

Ég er enn ekki búin að fá neina sjálfboðaliða fyrir ballið á laugardaginn....Það er alltaf gaman að sjá hversu vinsæll maður er!

En þá neyðist ég bara til þess að eyða enn einu kvöldinu fyrir framan imbann...við erum orðnir svo miklir vinir!

Flestir segja að Jesú hafi stigið upp til himna á uppstigningardag...sem er auðvitað mjög eðlilegt þar sem þetta heitir uppstigningardagur....en...hann var löngu stiginn upp, hann hringsólaði í himninum í mánuð og á uppstigningardag kom hann aftur til jarðar og birtist lærisveinum sínum og gaf þeim sönnun á því að himnaríki væri til....svo auðvitað steig hann upp aftur, settist við hægri hönd Guðs og lét aldrei sjá sig framar.

En þetta var kristnifræði tíminn í dag, sponsered by Heiða...Valdi bróðir gangi þér vel í kristnifræði prófinu í dag!

Adios í bili

fimmtudagur, maí 20, 2004

Fór í svaka hestaferð í dag...fór með mömmu og fullt af alvöru reiðmönnum í ferð um ölfusið...tók svolítið á en var rosa gaman..svo var stoppað og grillað og rosa fjör. Nú er ég bara að jafna mig eftir þetta allt....er að reyna að koma blogginu mínu í lag..það gerist hægt en gerist örugglega....

miðvikudagur, maí 19, 2004

Þetta kemur hægt en kemur samt...

Mér var bolað úr vinnunni klukkan þrjú í dag.....það er svona þegar þarf að bóna gólfin eða hvað það var nú eiginlega...þá er manni bara sagt að fara heim...það er svo sem allt í lagi, ég kvarta ekki mikið yfir því.

Ég setti inn nokkrar myndir handa ykkur

Ætla að reyna að koma þessu bloggi mínu í gott lag um helgina...hafið góðan dag og njótið morgundagsins

Ein spurning...hversu margir vita hvað gerðist á uppstigningardag?

þriðjudagur, maí 18, 2004

Ég og Lilja ætlum að njóta orlando bloom og brad pitt í kvöld...því miður ekki bókstaflega....það væri ekki ónýt kvöldstund! Við látum okkur nægja að sjá þá á stórum skjá!
Eurovision hljómar hérna í vinnunni allan daginn...fólk er ekki alveg tilbúið að skilja við keppnina alveg strax.

Er einhver sem nennir að koma með mér á stuðmannaball á Selfossi 22. maí???
Lilja mín þykist ætla að vinna og mig vantar ballfélaga...er einhver sjálfboðali þarna?

En jæja...best að halda áfram....

hankkia arka aika

mánudagur, maí 17, 2004

Þá er helgin liðin og ég mætt í vinnuna!

Helgin var voða fín...rosalegt eurovision stuð...Jónsi stóð sig nú bara svei mér vel á sviðinu þótt að stigin væru fá...Úkraína átti þetta alveg skilið...við tökum bara undankeppnina að ári með trompi ;)

Söng svo á tónleikum með kór Lindarkirkju á sunnudeginum...það var bara rosa gaman...söng tvær aríur og eitthvað meira....fékk blóm í restina og allt...fyrir utan það að ég fékk borgað fyrir að syngja þarna...það er náttúrulega bara cool....hehehe

En ætli ég verði ekki að vinna eitthvað...

Hafið það gott í dag og passið ykkur að drukna ekki í allri þessari rigningu!!!!

laugardagur, maí 15, 2004

Eurovision byrjar eftir 10 MÍNÚTUR

Gleðilega hátíð allir sem einn og áfram Jónsi!!!!!

föstudagur, maí 14, 2004

djíses...allt í vitleysu...vantar hjálp!!!

Þetta tekur svolítinn tíma

fimmtudagur, maí 13, 2004

Þá er undankeppnin liðin....og ég verð að segja að ég er mjög svo svekkt, ég hafði að vísu rétt fyrir mér um helminginn af lögunum sem komust áfram....en hvað í andsk...... var fólk að pæla með því að kjósa Möltu...ég meina það...ég var með æluna upp í kok meðan sú þjóð var á sviðinu...on again off again like a rithm of friends...eða eitthvað svoleiðis..og svo þessar dæturdrottningar óp...ég meina...ojbara...og svo croatia...það var nú meiri hörmungin líka...ég var svo hneiksluð...og Danmörk komst ekki áfram..what the hell..Tómas var æði á sviðinu..fannst litlu hjólaskautarnir æði hjá honum...ég mikið svekkt.. og þar misstum við líka 'Islande douze point' frá Dönum...mikið fúl. En hún Ruslana frá úkraínu komst áfram, ég var þó sátt við það.. en það þýðir ekki að grenja yfir þessu....nú er bara að koma sér í almennilegt stuð fyrir laugardaginn!

Ég er svo að fara að vinna eftir hádegi í dag...fæ að byrja að vinna einum og hálfum degi á undan áætlun...það er nú svei mér fínt...fyrir utan það að það er komið svo gott veður

Þarf svo að fara í bæinn í kvöld á enn eina kóræfinguna...og Lilja mín ég mæti á eftir að sækja spóluna ;)

jæja ég ætla að fara að horfa á Nágranna...jájá ég veit...en ég er hooked og búin að vera það í mörg ár...og Darcy you ass...you're finally busted...ég er svo hamingjusöm!

mánudagur, maí 10, 2004

Helgin liðin...ég byrja nú ekki að vinna fyrr en eftir viku..en það þýðir ekki að ég geti slappað of mikið á...ég er að fara að syngja með kór frænda míns næsta sunnudag, þannig að það verða æfingar upp á hvern einasta dag...svona næstum því...ég ætla sko að sitja heima á miðvikudagskvöldið....EUROVISION...sko forkeppnin!

Svo er að koma að þessu....Eurovision....næsta laugardag ætla ég að sitja heima með pizzu og kók og horfa stolt á Jónsa okkar syngja sig inn í hjörtu Evrópubúa!

Helgin var voða fín...Hestbak, harðsperrur, leti og bíó! Getur varla verið betri

Það er búið að biðja mig um að syngja í tveimur brúðkaupum í sumar...alltaf gaman að vera vinsæll! Svo fer ég í eitt brúðkaup sem ég fæ að bara bara gestur...þannig að það eru þrjú brúðkaup í sumar....það eru bara allir að gifta sig í sumar...svo veit ég af einu brúkaupi í viðbót....sem ég er að vísu ekki boðin í.....en það er svo sem ágætt...ég er ekki viss um að ég mundi höndla eitt brúðkaupið í viðbót!

Jæja...ég ætla að næra mig núna og liggja svo í heitu baði og láta mér líða vel

See ya later

þriðjudagur, maí 04, 2004

Enginn hefur hringt í mig ennþá...sem þýðir að ég er líklegast búin að ná öllum prófunum! vonandi.

Er að drepast í hálsinum...fékk eitthvað tak í hálsinn í gærmorgun og ég get varla hreyft á mér hausinn. ekkert lagast þetta...þarf líklegast að kalla á lækni svo ég geti nú hreyft mig...

En ég er búin að setja inn fleiri myndir....er að reyna að vera dugleg að setja inn myndir...

laugardagur, maí 01, 2004

Yahoo!!!!

Búin í prófum....rosalega er þetta góð tilfinning...en ekki er allt búið enn...flyt með allt draslið í Hveró á morgun, fer í söngtíma á mánudaginn, fer upp í LHÍ á þriðjudaginn og svo ætla ég að syngja með kór Lindarkirkju 16 maí...þannig að það er engin hvíld í bili...ja...þetta er nú samt betra en að þurfa að vera að læra og fara í próf! ;)