Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, desember 29, 2005

Jólin liðin, áramótin framundan

Ég er búin að hafa það bara voða gott um jólin, aðalega slappað af. Reyndar var ég svo óheppin á þorláksmessu að sjálfskiptingin í bílnum mínum gaf sig....þannig að nú er ég bara í bíla hugleiðingum, þarf að redda mér nýjum bíl áður en ég byrja aftur í skólanum, reyndar er ég með hugann við einn sérstakann, sjáum til hvað gerist :)

Hún Rakel vinkona (ragga spes) varð í 4 sæti í jólalagakeppni rásar tvö, samt ekki slæmt miðað við hversu margir sendu inn lög, til hamingju með það Rakel :)

Áramótin eru á næsta leyti, mikil hátíðarhöld þá, það verður byrjað á því að fara á Sölvakvöld á örkinni á föstudaginn og svo verður fagnað nýju ári á Snúlla þar sem Hitakútur mun trylla lýðinn :) Það verður ekki annað sagt en þar sem Hitakútur kemur saman, er einfalldlega rosa gaman....heheheh rímaði og allt saman...
Allir að mæta þangað

Ég segi bara Gleðileg jól og hitti ykkur öll á nýju ári....á Snúlla :)

fimmtudagur, desember 15, 2005

Jólalagakeppni Rásar 2

Nú verða allir að drífa sig á
http//www.ruv.is/poppland
og kjósa lag númer 6 eða Það er aðfangadagskvöld

Vinkona mín á þetta lag og vantar góðan stuðning :)

laugardagur, desember 10, 2005

Brjálað að gera en tónleikarnir búnir

Jæja þá eru tónleikarnir mínir afstaðnir.....þeir gengu bara alveg ágætlega, var samt með svona rosalega bad feeling fyrir tónleikana...en ekkert vont gerðist...söng bara rosa vel og ég var rosa ánægð.....það er nú samt ekki allt búið enn...þarf að vera í skólanum í eina viku í viðbót...það er alveg verið að drepa mann á þessu námskeiði...er komin með bullandi bakverk og ég veit ekki hvað og hvað...þarf að skila svo einni ritgerð fyrir jól og fara í píanó próf...enn skemmtilegt :)

Verð samt voða fegin þegar þetta er búið og ég get slakað aðeins á og farið í nudd og svoleiðis...það verður voða ljúft...

svo verður brjálað að gera í skemmtanahaldi um áramótin.....get ekki beðið eftir því.

Ætli ég verði ekki að fara að vinna........rosa stuð í Sunnumörk í dag, jólahátíð með Bjössa Bollu og Jólasveinum og svoleiðis

látið ykkur nú líða vel...sjáumst hress, ekkert stress og verið bless ;)

fimmtudagur, desember 01, 2005

Áramótaballið!

Þá er búið að staðfesta það að áramótaballið í Hveró verður á Snúlla og Hitakútur ætlar að spila. Það ætti að verða svaka stuð...og Lilja, þú lofaðir að koma....

Ég hitti manneskju úr fortíðinni...labbaði að vísu bara framhjá, en svoleiðis fær mann oft til að hugsa til baka....humm....veit ekki hvort það sé gott, það getur verið erfitt að detta ekki í sömu gildrur....en það er náttúrulega spurning hvort núna sé maður í gildrunni, en ekki áður.....

jæja...Kisan mín er farin að kvarta...ætli ég verði ekki að sinna henni eitthvað :)

Sæl að sinni
Heiða