Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, desember 23, 2003

þá er komin þorláksmessa...júhú! Lilja til hamingju með daginn dúllan mín! allt er orðið fínt hér og ég tilbúin í jólin...en aftur á móti verður skötuveisla hérna í kvöld...ojjjj! en ég ætla bara að forða mér og borða kökur hjá Lilju...thank u Lilja mín að bjarga mér frá þessum ósköpum! Já lífið er bara alveg ágætt núna...tónleikarnir í dómkirkjunni gengu bara rosa vel og allar einkunnir voru yfir átta svo ég er bara sátt! Svo nú er ekkert eftir en að njóta jólanna...ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til... Það ertu tvö böll á dagskránni yfir jólin og áramótin...annan í jólum er það Stuðmenn í Hvíta húsinu á Selfossi og svo er það Snúlla bar um áramótin...þótt að ég viti ekki enn hvaða hljómsveit verður að spila þar...vona allavega að það verði hljómsveit sem spilar þar! Það er alltaf svo gaman að fara á böll hérna á suðurlandinu....nýt þess allavega miklu betur en að fara á djammið í Reykjavík. En núna ætla ég að drífa mig í kökur svo ég segi bara

HÓ HÓ HÓ GLEEEÐILEG JÓL

fimmtudagur, desember 18, 2003

jæja þá er kominn fimmtudagur og tónlekar í nánd! Röddin er barasta í lagi svo þetta verður fínt! Svo þarf ég að vinna í fyrramálið en eftir það þá er ég komin í jólafrí og ætla ekki að gera neitt nema að slappa af. Það verður svo gott ;)

þriðjudagur, desember 16, 2003

Jæja þá er nú aldeilis farið að styttast í jólin! ég þarf nú samt að komast í gegnum þessa viku áður en ég get farið að slappa alveg af...ég fékk auðvitað hálsbólgu...svona rétt áður en ég á að fara að syngja...en það verður bara allt í lagi...í versta falli þá þegi ég framm að tónleikum og svo bara búmm...læt allt flakka á tónleikunum...svo er ég búin að kaupa jólagjafir...uhhh reyndar er ein eftir...en ég veit alveg hvað það er...þarf bara að finna hana! ég fór á ball um síðustu helgi...með í svörtum fötum á örkinni í Hveragerði...það var rosa fyndið því það komu svo ofboðslega fáir og fyrir utan Gunnu sem kom með mér þá var ég elst! og ég meina elst með yfirburðum...en ég skemmti mér samt voða vel...dansaði alveg rosalega mikið..svo er jónsi alveg voða mikið augnakonfekt!

miðvikudagur, desember 10, 2003

haldiði ekki að Orlando Bloom sé kominn á fast....þetta er bara ekki sanngjarnt...ekki það að maður átti neinn séns...en maður má nú alveg láta sig dreyma

Ég er búin í prófum....ohhh hvað það er góð tilfinning!
og Svava til hamingju með bloggið!

þriðjudagur, desember 09, 2003

Síðasta prófið er á morgun....Píanó...gott til að verða stressuð..getið þið ímyndað ykkur að reyna að spila á píanó með stressaða putta...virkar ekki alveg...en good luck to me! Söng á jólatónleikum síðasta laugardag...það gékk svona um það bil hræðilega....talandi um að "what can go wrong will go wrong" En ég verð bara að bæta upp fyrir það þegar ég syng í dómkirkjunni...Er búin að vera dugleg að fara í ljós...ætla ekki að vera eins og næpa í sæta jólakjólnum mínum ;)

Var að horfa á spaugstofuna um daginn...þeir hafa nú venjulega verið hálf þreyttir en síðasti þáttur var brilliant....ég grenjaði af hlátri....Harrý og Heimir Rúla!!!!

Ég var svo sniðug með jólagjafir (er eiginlega búin að kaupa þær allar), ég keypti handa henni Lilju minni rosa sniðugt...sko....nei, best að þegja...þú færð sko ekkert að vita...hehehe

Ég þoli ekki stress...maður fær bara magaverki, svita og andarteppu...hvernig á maður að virka svoleiðis?

föstudagur, desember 05, 2003

Til hamingju Helga með bloggið :)

Þá er komin helgi...ég þarf að syngja á jólatónleikum á morgun...í skólanum...það verður svaka fjör...svo er maður bara næstum búinn í prófum...bara píanó próf eftir og þá er komið jólafrí...reyndar þarf ég að syngja í dómkirkjunni 18 des...en það er ekkert til að hafa áhyggjur af...bara rosa gaman að fá að syngja einhvers staðar annarstaðar en í skólanum :)

Góða helgi!

fimmtudagur, desember 04, 2003

Söknuður getur verið erfiður! Maður veit ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur...það eru sko orð að sönnu.

miðvikudagur, desember 03, 2003

Ég sver það...ég er alveg hætt að vilja vakna á morgnanna..það er svo rosalega gaman hjá mér á nóttinni...fæ allavega þar eitthvað sem ég fæ ekki þegar ég er vakandi...en jæja...Mamma átti afmæli í gær...svo maður skellti sér í Hveró í matarboð...það var mjög næs..svo er próf á morgun...ekki mjög bjartsýn fyrir það...en það kemur bara í ljós hvernig það fer!

mánudagur, desember 01, 2003

Jæja þá er kominn desember og jólin nálgast...ohhh...það er svo gaman á jólunum...mig langar alltaf að fara aftur í barndóm á jólunum...en ég verð bara að segja ykkur að mig dreymdi svo yndislegan draum í nótt...ohhh rómantíkin blómstraði alveg og ég fékk nóg að kyssa og knúsa! langaði ekkert að vakna....en sá sem ég var að dreyma um hef ég alltaf kallað einn af mínum bestu vinum...svo humm...veit ekki alveg hvort það sé gott eða vont! Nóttina áður dreymdi mig David Bowie...sem ég verð að viðurkenna var bara alls ekki slæmt ;) En þessi draumur var nær heima...svo ég veit ekki alveg hvernig ég á að vera...En það var allaveganna rosa næs og ég er alveg að koma mér í jólaskapið...brosi bara og raula jólalög...get ekki beðið eftir að komast í jólasteikina hjá mömmu! Love ya all og brosið í allan dag ;)