Jólin að koma
Jæja, lagið vann ekki í jólalagakeppninni...en það var samt flottast!
Ég var svo hrikalega óheppinn að fá svona "home alone" dett....það er að segja, ég var í stiga, hélt á rosa stórri kongótrommu og svo rann ég til og fæturnir fóru upp í loft og bakið beint á stigann, það þurfti að hringja á sjúkrabíl og alles, ég sem betur fer er bara tognuð á bakinu og nú er ég farin að geta hreyft mig aðeins og meira að segja sofið á nóttinni. Ég ætti að vera orðin góð fyrir jól....sem betur fer!
Annars er ég bara að vinna eins og brjálæðingur, reyni svona inn á milli að kaupa jólagjafir, skrifa jólakort og pakka inn gjöfum....fór nú í smáralind í gærkvöldi og ætlaði svo að kaupa mér jólaföt, mér tókst ekki að kaupa eina einustu spjör....jólakötturinn verður glaður í ár! Jæja, þá verður maður bara að vera í gömlu lörfunum um jólin!
Ég ætla að fara að vinna núna
njótið jóla veðursins (hóst hóst)
adios í bili