Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júlí 29, 2005

Já nú líst mér á mína menn

Það nennir náttúrulega enginn að vinna á föstud. fyrir versló þannig að yfir menn mínir hengdu bara miða í rúðuna sem stendur á "lokað frá 12.30 föstudaginn 29. júlí 2005" Settu símanúmer líka ef það eru áríðandi mál sem þarf að bjarga....ja hérna hér.....ég er bara á leiðinni heim í hádeginu ;)
Ekki slæm byrjun á langri helgi

En það er auðvitað einn galli á gjöf Njarðar.....ég er bíllaus og mamma fer ekki heim fyrr en fjögur...hummm...ég byrja á því að skúra..alveg sama þótt fólk sé ennþá vinnandi...skúra bara samt....og svo veit ég ekki alveg hvað ég á að gera...athuga hvort móðir mín vilji ekki taka sér frí líka...hummm....sjáum til hvað gerist.

Við fjölskyldan ætlum upp í bústað eins og ég hef áður sagt...ætlum að vera til hádegis á sunnudag...svo bara heim í heiðardalinn...ég verð samt ein heima á sunnud. kvöldið þannig að ætli ég byrgi mig bara ekki upp með óhollustu af verstu gerð... það er alltaf gott...svona stundum. Það finnst mér allavega :)

fimmtudagur, júlí 28, 2005



Erum við systkinin ekki sæt ;)

Alveg að koma helgi

Ekki mikið að gera í vinnunni núna.....flestir í fríi og enginn nennir að vera að gera eitthvað að viti svona rétt fyrri Versló, fólk sem ætlar út úr bænum eru að undirbúa það eða farin! Ekki mikið að gera í skúringunum heldur...held að þær séu bara tvær að vinna í dag og á morgun....ekki mikið rusl eftir þær...svo er þetta síðustu dagarnir mínir í skúringunum....ágætt að komast heim strax klukkan fjögur. Þó að maður er náttúrulega alltaf í peningavandræðum....æi...þetta hlýtur að reddast...ef allt fer á versta veg þá enda ég bara sem gömul piparjónka sem bý hjá foreldrunum til eilífðar...nei..ætli þau fara ekki að henda mér út bráðum :)

Það er líklegt að við skellum okkur upp í bústað á morgun...veit ekki alveg hversu lengi....Þetta verður svona kveðju ferð...búin að selja bústaðinn og þurfum að sækja dótið okkar....skrítið að vera þarna og ekki eiga neitt í honum, Ingunn er víst eitthvað búin að breyta þarna...síðasta ferðin....já, mjög furðulegt...
Mamma var að tala um að hún mundi vilja láta dreifa öskunni sinni í fossinn sem hún baðar sig alltaf í....ekki verður það gert úr þessu!
Fúllt samt að bústaðurinn endi ekki hjá okkur, Pabbi teiknaði hann þannig að hann á svolítið mikið í honum....Æi, þetta er bara skrýtið...margar góðar minningar þaðan :)

Nú er stóri bróðir minn að verða hollywood stjarna hehehehe
fékk hlutverk sem statisti í Clint Eastwood myndinni...hann er alveg rosa spenntur, hann átti að mæta núna í morgun og máta búninginn (full herklæði) og svo áttu þeir að fara í æfingar í vatni og eitthvað svoleiðis...rosa spennó, ekki slæmt að geta sagst hafa verið í Spielberg og Eastwood mynd :)

þriðjudagur, júlí 26, 2005

Ég er alveg að deyja
ógeðslega heitt úti og ég er alveg að sofna hérna í vinnunni, langar bara að komast heim...en auðvitað á ég líka eftir að skúra.....reyndi að auka orkuna svona allavega í smá stund með því að fá mér súkkulaði og kók...en ég get sagt ykkur það að það virkar ekki....varð bara ennþá þreyttari...þannig að hálft súkkulaði stykkið endaði í ruslinu.

Svo slitnaði fína ökklabandið sem Helga Enea frænka bjó til handa mér, meira að segja í þrjá parta, verð að ná í skottið á henni til þess að laga það...gengur ekki að hafa það svona.

Svo styttist óðum í Krítarferð...ég orðin svaka spennt...þó að mamma er voða mikið að hræða mig...segir að það verði alltof heitt og ég eigi eftir að brenna og verða pirruð á hitanum og þreytt og bla, bla, bla. Það getur svo sem vel verið að ég eigi eftir að eipa á hitanum...en þá verð ég bara að vera þeim mun meira í sjónum.

"Förum saman í ærlegt sumarfrí og veistu hvað, ég barasta held bara, að það verði ógeðslega gaman"

mánudagur, júlí 25, 2005

Ekkert smá yndisleg helgi!
Það var brunað af stað upp í grímsnes strax eftir vinnu á föstudag, vorum smá hrædd um að þorpið í minniborgum yrði ekki alveg tilbúið.....en það var nú ekki svoleiðis, þeir voru búnir að vera vinna alla nóttina kallarnir og þetta lítur ekkert smá vel út, ekki skaðaði veðrið...rosa sól og steik...en kannski skaðaði hún smá, ég er skað brunnin á öxlunum.....en það var mikið talað, sungið, dansað, etið og drukkið og svo fóru auðvitað allir í pottinn. Verð bara að segja að þetta var bara mjög vel heppnað ættarmót og ég mæli eindregið með minniborgum ef hópar vilja fara saman að hafa gaman :)

Smá sjokk þegar við komum heim...þá var engin kisa inni...við vorum alveg viss um að hafa lokað hana inni, hún fann sér smá rifu á einum glugganum og troðið sér út...því líkt og annað eins....þetta var á annari hæð þannig að hún komst ekki inn aftur...veit ekkert hvað hún var lengi úti...ég fékk náttúrulega áhyggjukast eins og mér er von og vísa..en hún kom svo bara lallandi til baka þegar hún heyrði umgang hjá húsinu :)

Versló næst!
Ætli maður verði bara ekki rólegur...löng helgi og mig langar að fá góða hvíld...þó það sé aldrei að vita hvað maður gerir.

Ótrúlega fyndið, tvær frænkur mínar koma frá Krít sama dag og ég fer út og svo koma Erna frænka og maðurinn hennar til krítar viku eftir að ég fer út þannig að við verðum þar saman í eina viku.....bara fyndið...það verður sko stuð á Krít

Jæja hafið það gott

Heiða

föstudagur, júlí 22, 2005

Föstudagur, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður!
Júlí bara alveg að verða búinn og það styttist í Krítarferð, Skrítið samt að hlakka til að sumarið verði búið, ekki eins og maður sé búinn að gera eitthvað af viti í sumar, alltaf að vinna og hefur einhvernveginn engan tíma til að gera nokkuð annað...

Haldiði ekki að hún Krútta mín sé komin með heimasíðu, mér fannst þetta bara einfalldlega of sætt til að sleppa þessu :) Kíkið endilega á Krúttu kisurófu.

Hafið það gott um helgina....

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Ég þoli ekki frekjudollur sem halda að þær get vaðið yfir mann á skítugum skónum.

En allavega, ég fór til læknis í gær útaf kjálkanum og læknirinn stakk nál í kjálkann, djöfull var það vont, og svo sagði hann að þetta yrði horfið innan tveggja tíma....guess what, ennþá get ég ekki opnað alveg munninn, þetta virkaði ekki skít...svo þarf maður að borga svona mönnum.

Alveg að koma að ættarmótar helginni.....rosalega á að verða mikið fjör þar...alltaf gaman þegar toppfólk kemur saman. Svo verð ég bara heima um Versló, foreldrarnir þykjast ætla að mála eitthvað...skil ekkert í þessu liði....ef það verður gott veður þá kannski kíkir maður í galtalæk á sunnudeginum...kemur í ljós. Kannski maður skelli sér í golf með pabba....kann svo sem ekkert í golfi og get orðið rosa pirruð þegar það gengur ekkert að hitta kúluna...en gæti samt verið gaman :)

jæja, ég er að pæla í því að fara í mat....

mánudagur, júlí 18, 2005

Enn ein helgin liðin, það var nú ekki mikið gert þessa helgina, lá bara í leti, það er nú bara ágætt stundum. Það verður rosa stuð næstu helgi, þá er ættarmót í minniborgum, allir búnir að bíða lengi eftir þessari helgi....nokkur ár að ég held...þannig að það á að verða rosa gaman ;)

Svaka læknastúss á mér í vikunni, á morgun fer ég í sprautu, hitti astmalækni og heimilislækni...alveg ótrúlegt...ég verð yfirleitt aldrei veik....en er alveg hrikalega heilsulítil...bara fyndið...nú er það kjálkinn á mér....enn eina ferðina...veit ekkert hvert maður á að snúa sér...get varla opnað munninn og á hrikalega erfitt með að borða. asskoti pirrandi.

Annars er bara allt gott að frétta...mér gengur bara ágætlega í vinnunni, allavega ekki búin að gera neinar gloríur ennþá :)
Ætla mér að halda því þannig!

mánudagur, júlí 11, 2005

Ágætis helgi liðin, ekkert mikið gert svo sem, Hitti Lilju aðeins á Krúsinni og kíkti í tívolí í Rvík. En annars ekki mikið um að vera

Alveg ótrúlegt hvað sumir fatta ekki að það sem þeir segja hafa áhrif á aðra! Stundum dettur eitthvað út úr einhverjum og sá hinn sami hugsar ekki meira út í það, áttar sig ekki á því að þessi litlu orð komu upp um hann og skilur eftir sig stórt sár. Maður fer að hugsa sig um hvort maður hefur einhverntíman gert hið sama.... ein lítil setning getur fengið mann til að hugsa marga hluti upp á nýtt!

en ekki meira í bili, bara að halda áfram að vinna :)

föstudagur, júlí 08, 2005

djísus

Svaf svo yfir mig í morgun, vaknaði 7.20....hrikalegt...þá var bara að drífa sig í föt og hlaupa út....það er svo vont að vakna svona seint....maður er alveg ónýtur lengi á eftir.

En nú er fólkið á heimilinu komin heim...rosa brún. Ég fékks svona hálsmen með nafninu mínu...:) hef aldrei átt svoleiðis áður, svo er mamma svo mikið að hugsa um krítar ferðina mína svo hún var í því að kaupa boli handa mér sem ég gæti notað úti.

Svo á að vera Stuðmannaball á Hótelinu á Selfossi í kvöld...held ég...upplýsingarnar sem maður fær eru ekki alltaf mjög góðar, vil helst komast...langt síðan að maður hefur farið á ball á Hótelinu, góðar minningar þaðan :)

Ég ætla að reyna að vakna....ég er alveg eins og asni hérna núna...get varla opnað augun rétt!

þriðjudagur, júlí 05, 2005

Ég þoli ekki hausverk!

var með hausverk í gær og tók tvær pillur áður en ég fór að sofa...verkurinn var nú eiginlega farinn loks þegar ég sofnaði...svo gaus hann upp um miðja nótt...óþolandi að fá hausverk þegar maður sefur....svo er ég búin að vera með hausverk í allan dag.

Foreldrarnir koma svo aftur heim á fimmtudaginn...það verður nú voða gott að fá þau heim.....það er voð einmannalegt að vera ein í stóru húsi...hún Krútta mín er líka farin að sakna þeirra...vekur mig upp á nóttinni og grætur og grætur....gefst sko ekki upp.....hún er ekki hrifin af fjölmenni...en vill samt ekki vera með of fáa í kringum sig.