Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, september 26, 2006

Hello hello

Er mætt upp í skóla, er í íbúðinni hennar ömmu þessa vikuna, svona á meðan hún er í útlöndum :), vantar alveg hrikalega að leigja íbúð. En ég á að fara í tíma eftir fimm mínútur, þannig að þetta verður stutt.....það er ekkert net heima hjá ömmu minni þannig að ég verð að mæta hingað til að kíkja á póstinn minn.

Langar að gera svo margt en finnst ég ekki hafa neitt að gera, á eftir að gera svo margt en kem mér ekki í að gera það. Margt að klára en ekkert gerist!!!!!

Kveðja Heiða

mánudagur, september 18, 2006

Ný vika

þetta var alveg ágætis helgi.....er að vísu að berjast við leiðindar kvef, Kíkti aðeins á Nasa á laugardaginn á í svörtum fötum....það var rosa gaman, Lilja og Endre komu með....maður hittir þau skötuhjú alltof sjaldan :) Við fórum að vísu heim í hléi, ég meina, einu sinni voru böll búin klukkan þrjú, en núna er bara hlé klukkan þrú :) Við vorum alveg búin að fá nóg, samt rosa fjör.

Jæja, ég ætla að drífa mig í skólann, þó að ég verði að viðurkenna að ég er svakalega löt í dag.....þarf að drífa mig upp og gera eitthvað ;)

Meira seinna
Bæjó

þriðjudagur, september 12, 2006

Halló halló

Er að verða brjáluð á þessum stiga hér í skólanum......maður er alltaf að drepast eftir að príla hingað upp :)

Ég ætlaði alltaf að setja fleiri myndir hér inn....en heimilistölvan er búin að vera biluð í einhverja mánuði og myndirnar mínar eru fastar þar inni....ekkert skemmtilegt.

Er frekar dösuð núna, er byrjuð á því að fara í sund á hverjum morgni, reyna að vera dugleg og synda 500 metra á dag. Kemur í ljós hversu lengi það endist!

Jæja, ég þarf að fara í söng tíma, Ætla að vera dugleg :)

Kveðja Frá mér

mánudagur, september 04, 2006

Jæja...maður er búinn að vera lélegur í blogginu.

Skólinn er byrjaður aftur, stressið byrjað að gera vart við sig....ahhh...allar sömu gömlu tilfinningarnar....allar hér ennþá.
Veit ekki hvað ég á gera....ekki að það sé eitthvað nýtt....átti að skila inn átta til tíu heimildum í dag....heimildum sem ég ætla að nota í BA ritgerðina, en þar sem ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að skrifa um...og þá meina ég ekki glóru, þá er svolítið erfitt að skila inn heimildalista.

Svo verða allir að vaka á morgun og kjósa Magna....Áfram Magni.....

Það er svolítið erfitt að vera í háskóla...borga fullt af peningum og vera svo á stað sem maður vill ekki vera á....fastur einhverstaðar sem "feels wrong" En hvað er þá rétt? Ég veit það nú ekki heldur.....Eru ekki margir að gera eitthvað sem verður svo ekkert úr seinna...fólk fer svo í allt aðra átt þegar þessum kafla er lokið!?!

Nóg af þessu.......

Annars líður mér alveg ágætlega....langar að gera svo ótalmargt en hef ekki hugmynd um hvað það á að vera.....ég held að það hafi verið sett í mig overdose af Vog þegar ég fæddist...það er nú ekki einu sinni fyndið :)

Jæja, ætla að reyna að vera í betra skapi þegar ég skrifa hér næst.....ég meina, fólk fer að halda að ég sé einhverskonar þunglyndissjúklingur....ég er það samt ekki ;) allveg satt... það virðist bara sem að maður hafi mest að segja þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp en þegar allt er í lagi :)