Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, september 30, 2004

Ég er búin að vera að læra eins og vitlaus væri síðustu daga...er í prófum núna og fer í erfiðasta prófið á morgun...Tónlistarsaga...ohhh er að verða geðveik, verð voð fegin þegar þetta er búið...en þá tekur auðvitað bara meira við.
Svo er það Ísafjarðar ferðin mikla..Það verður lagt af stað með rútu klukkan sjö á mánudagsmorgun....alltof snemmt...og ég með mína bílveiki...þetta verður interesting. Svo komum við heim á föstudaginn, verðum alveg í heila viku þarna, djísús. Það verður full dagskrá allan tímann...við eigum að tónsetja Ísafjörð...hvernig sem maður fer að því! Það eina sem við þurfum að borga er maturinn og hann verður keyptur í sameiningú á ísafirði. Ohh...ég fæ þá ekki að fara út að borða á fimmtudaginn...en ohh well...maður getur víst ekki fengið allt sem maður vill. Jæja, ætli ég fari ekki að steikja á mér heilann aðeins meira...algjört svindl að maður lærir og lærir og svo nær maður kannski ekki prófinu...ég meina, mér finnst ég vita rosa lítið um margt og ég þarf að vita ALLT. Það verður ritgerðarspurning og við fáum ekkert að vita hvað það getur verið svo maður þarf að vita rosa mikið um allt...þannig að ég er í djúpum....

ohhh...ég held að taugarnar mínar þoli ekki svona próf stand...vil bara ljúka þessu svo maður geti andað í smá stund!

Alltaf að sjá Jóel í skólanum....svona útundan mér...virðist vera svolítill einfari!
Eins og ég sagði Lilja...held að hann sé svolítið þín týpa!

Jæja hætta núna...bæjó og njótið þess að vera ekki í prófum!!!!

laugardagur, september 25, 2004

Ég fór í mat í gær hjá skólanum...sko 2. ár býður 1.ári í mat...þetta var alveg ágætt...fyrir utan það að maturinn var kaldur og engin áhöld í sósunum, við fengum engin hnífapör og engar servíettur...þvílíkt og annað eins...eina sem var á hreinu að það var seldur bjór á svæðinu...svo að við sem vorum ekki að drekka við þurftum bara gjöra svo vel að fara á klósettið og ná okkur í vatn þar, aldrei lent í öðru eins! En ég skemmti mér svo sem ágætlega....ekki skemmdi það að ég sá drauma prinsinn minn þarna. Ég var kynnt fyrir honum og er orðin proud member of the uncool club...en ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja meira við drenginn...og auðvitað er hann ekki íslenskur! En...ætli ég verði ekki að reyna að læra eitthvað, þarf að fara í þrjú próf í næstu viku...ekki alveg að fíla það.

En have a nice weekend

þriðjudagur, september 21, 2004

Þá er Surviver byrjað aftur...jei!

lítur út fyrir að þetta geti verið alveg ágætis þáttaröð....og Lilja mín...ég varð að finna mér nýjan Surviver partner! Hún Gunna er búin að fylla í skarðið þitt!

Nú eru prófin að nálgast í skólanum.....næsta vika verður prófvika...þarf að fara í þrjú próf...asnalegt að vera í prófum núna...svo aftur um jólin!

Ég er að láta mig dreyma um að vera í L.A. næsta sumar...veit ekki alveg hvort það verður hægt en ég ætla samt að athuga málið...hvort ég gæti fengið einhverja sumarvinnu þar...ég meina, ég get fengið fría gistingu og svoleiðis...en það kemur allt í ljós...í augnablikinu er þetta bara draumur!

Ætla að setja inn myndir frá afmælinu hennar Gunnu....Takk fyrir mig Gunna mín!

mánudagur, september 20, 2004

Palli var einn í heiminum....og þá var bankað.....

****** Takk fyrir að banka ******

laugardagur, september 18, 2004

Ég var að lesa DV í morgun og þar var verið að tala um kvikmyndastjörnur sem voru frægar í kringum 1985 og hvað þau væru að gera í dag...og ein stelpan var að leika í mynd núna sem kemur bráðum út (og er greinilega ekkert merkileg mynd að mati skrifanda) og þar stóð orðrétt, "sem einhver Jason Behr leikur aðalrulluna í" Ég varð svo móðguð að það hálfa væri nóg... EINHVER Jason Behr...hann er sko alls ekki bara einhver. Það sauð alveg á mér!

miðvikudagur, september 15, 2004

Kominn miðvikudagur aftur...eins og er er það eini dagurinn sem ég kemst í tölvu! Ég fór í partýið á föstudag...það var alveg ágætt...fór nú samt bara snemma heim, algjör party pooper...ohh well! Nú fer að styttast í 1.árs ferðina...hún verður frá mánudegi til föstudags, fyrstu vikuna í október...held að við eigum að fara til Ísafjarðar, heil vika...svolítið langt...bara eins og þegar maður var að fara í sumarbúðir þegar maður var lítill!

Get nú ekki sagt að það séu miklar fréttir frá mér....ég er bara alltaf í skólanum og svo heima að læra, glápi svo svolítið á imbann og fer að sofa...rosalegt líf...;)

En núna ætla ég að fara að læra....jeiiii
have a nice day

miðvikudagur, september 08, 2004

Jæja, þá er ég byrjuð í skólanum...allt á fullu...get nú ekki sagt að það sé gaman að keyra alltaf á milli en það virkar ágætlega....næstu viku fæ ég þó að vera í bænum, frænka mín er að fara til útlanda í rúmlega viku og var svo góð að bjóða mér íbúðina á meðan...en samt þarf ég að vera að keyra til Hveragerðis á mánudegi og miðvikudegi, það er svona þegar maður er að skúra á Hveró!
Fyrsta húllumhæið í skólanum verður svo næsta föstudag...það á að kjósa í nefndir og eitthvað party á eftir held ég! ætli maður kíki ekki á það. Það er nú samt svo óþægilegt að mæta svona einn og ekki þekkja neinn annan. Ég er nú ekki þekkt fyrir það að vera fljót að eignast vini svo mér kvíður pínu fyrir. Ég er í fríi í dag...svo það verður bara lært og lært og lært! djí...ekkert gaman...skólinn er nýbyrjaður og ég er að fara í próf í næstu viku...það ætti að banna svoleiðis.