Jæja, loks skrifar maður eitthvað hér
Það er allt brjálað að gera núna, tónleikarnir mínir verða 3.maí klukkan 18.00 í tónleikasal LHÍ, ef einhver vill mæta, svo verðum við Guðrún Árný með hádegistónleika saman 5.maí, það verður rosa stuð, verðum með bæði brahms dúetta og svo dægurlög...ætii að verða gaman ;)
svo er auðvitað meira að gerast í skólanum í næstu viku, ég ætla að stja einn nemanda minn í stigspróf og það verður líka próf fyrir mig, svona hvernig mér hefur tekist að kenna stúlkunni
en loks þegar næsta vika er liðin þá er það barasta off to Köben...ohhh það verður voða ljúft að komast aðeins í burtu....en ég ætla nú samt aðeins að kíkja á lions ballið 5.maí :)
En nú er Eurovision diskurinn kominn í höfn....það er svona skildu kaup hjá mér, verð bara að segja að það eru bara fullt af fínum lögum þetta árið, þó að sum hljóma miklu betur á diski...svona þegar maður þarf ekki að horfa á liðið....sumir eru bara aðeins of hallærislegir á myndböndunum :)
Svo vil ég óska Lilju til hamingju með vinnuna.....frábært að þetta skyldi hafa gengið upp....og einnig knús til Gulla útaf hjólinu...hlakka til að sjá :)
Jæja, ég ætla að hlusta meira á Eurovision....Það er sko eurovision stemning hérna í búðinni :)
Knús
Heiða


