Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, október 30, 2003

Getur eitthvað sem gerðist fyrir mann fyrir mörgum árum virkilega haft svo mikil áhrif á þig að það fylgir þér alla ævi....ég meina ef eitthvað slæmt gerist...eyðileggur það þá allt sem þú ætlar þér að gera sem er eitthvað í líkingu við það sem gerðist. Og hvað með sálfræðinga...hjálpa þeir virkilega eitthvað...verður maður ekki bara að hjálpa sér sjálfur...ég meina hlusta sálfræðingar ekki bara...segja þeir eitthvað...getur maður ekki alveg fundið sér góðan vin til að hlusta á allt þvaðrið í manni...eða hvað? En hvernig veit maður annars hvað er að bjaga mann...ég meina...ef mér líður illa þá veit ég aldrei afhverju...ég bý til fullt af ástæðum en hver er rétt...hausinn á mér er allavega ekki svo orginiseraður að hann viti hvað er að...svona á langtíma litið....æi...ég er ekki viss um að það sé neinn sem viti í raun hvað ég er að tala um...svona blaður fram og til baka...ef þið fattið hvað ég er að tala um endilega gefið mér einhver comment, adios amigos....og nefertiri hittir ykkur á morgun ;)

föstudagur, október 24, 2003

Hvernig virkar eiginlega þessi 100 atriða lista? eru þetta einhverjar sérstakar spurningar eða bara svona spuni úr hverjum og einum?

þriðjudagur, október 21, 2003

Furðulegur dagur í dag...mér líður eins og ég sé fárveik án þess þó að vera veik. Ég næ ekki að hugsa skýrt...búin að reyna að læra í dag og það er eins og heilinn virki ekki...bara ekkert kemur...ég horfi á verkefnið og ég get einfalldlega ekki gert neitt rétt! asnalegir svona dagar...maður vill bara liggja upp í rúmi og vera veikur en getur það ekki því þá er eins og maður sé að svindla því maður er ekki veikur...ekki með hita eða kvef og hálsbólgu eða neitt svoleiðis...bara líður asnalega og illa. Búin að vera með hausverk í dag en það er ekki nóg...svona dagar eru bara asnalegir!

mánudagur, október 20, 2003

Vinskapur...er maður einhverntíman viss hvenær vinir eru vinir...áttu kannski einhverja vini sem er alls ekki vinir þínir! Á maður að reyna sitt besta til þess að fólki líki vel við þig eða er það viss leið til að fá fólk einmitt til að líka ekki við þig. Er fólk að tala illa um þig þegar þú heyrir ekki eða eru vinir þínir trúir þér og tala alltaf vel um þig. Hvernig veit maður hvort einhver er virkilega vinur manns....ég trúi því að þú sjáir það strax...ég trúi því að maður sjái í gegnum fólk sem er "tvöfallt"...úúú Alias er byrjað....meira seinna!

þá er gull toppnum reddað fyrir halloween...þarf bara að redda svörtu pilsi eða eitthvað svoleiðis...sé til hvað hún mamma mín á meira til í skápnum sínum! svo er það gyllta bodyspreyið sem ég vona að ég finni í Ice in a bucket og þá er ég orðin voða fín egypsk prinsessa ;) en nú ætla ég að fara að leika mér...spila smá El dorado í tölvunni og svo er það bara SURVIVER í kvöld.

sunnudagur, október 19, 2003

Jæja...Loksins að fara að byrja að horfa á 3. seríu af Roswell...úúú get ekki beðið...fyrir ykkur sem ekki vita þá er Roswell þáttur um fallegustu geimverur EVER! og mannverurnar eru ekki svo slæmar heldur....svona slef þáttur! Svona er maður ömurlegur....en ég skammast mín ekkert fyrir það!
Svo er ég ekki enn búin að redda mér svona egypskum fötum eða sjali eða eitthvað...fyrir halloween....verð að finna eitthvað svoleiðis...er einhver þarna sem getur hjálpað?
ye right....það má alveg reyna :)

laugardagur, október 18, 2003

jæja þá er komin önnur helgi...alveg ótrúlegt hvað maður er stundum tómur...alla vikuna þá hef ég ekki bloggað neitt...bara hef ekkert að segja....kannski dæmi um það að maður lifir ekki svo skemmtilegu lífi!
Ég var hjá Hjördísi vinkonu í gær, að skoða nýja barnið hennar...hún átti voða sætan strák um síðustu helgi. :) ég væri alveg til í að eiga eitt svoleiðis..en maður þarf nú víst mann til að fá svoleiðis..og peninga og tíma og allt svoleiðis...vá ég held að ég sé með "svoleiðis" á heilanum! djí. Jæja...ég ætla að skella mér í Kringluna á eftir...á voða flott gjafakort og ætla að fá mér eitthvað af fötum...kominn tími til!

þriðjudagur, október 14, 2003

jæja jæja jæja
Þá er djamm aldarinnar búið og annað kemur strax á eftir (eða næstum því)
Partýið gekk bara vel...allir voru hrifnir af matnum og það gekk bara ágætlega að þrífa eftir allt þetta fólk. Þá er bara komið að nýrri viku...ji minn...maður nennir nú varla að fara í skólann....en afhverju er maður að þessu öllu saman ef maður nennir ekki í skóla og svo þegar maður fer á vinnumarkaðinn þá nennir maður aldrei að mæta í vinnuna á mánudegi! æi ég veit ekki...bara svona af því bara! því það er það sem maður á að gera!
Jæja á maður ekki að vera í góðu skapi og svoleiðis, hætta að kvarta alltaf svona mikið! Lífið er nú ekkert svo slæmt...ja allaveganna þegar maður lætur það ekki fara í taugarnar á sér...ég held að þetta sé allt í hausnum á manni...Lífið er gott ef þú trúir því...svo getur lífið líka verið hræðilegt ef þú bara trúir því...þannig áð það er maður sjálfur sem ræður hvernig lífið er!

föstudagur, október 10, 2003

Þreytt......rosa þreytt....ég á ekki eftir að lifa morgundaginn af...ég meina..í næsta partý þá ætla ég bara að mæta...einhver annar má skipuleggja...en þetta hefur maður upp úr því að hafa fínt partý...en aftur á móti þá er eins gott að þetta verði umtalaðasta partýið...Lilja...getur þú ekki skrópað í vinnunni...mig sárlega vantar hjálp á morgun! ég er að pæla í því að fara upp og glápa á sjónvarpið í smá stund...svona meðan allt er rólegt. ;) seeyaa í jelló skapi.

fimmtudagur, október 09, 2003

jæja...þá er farið að styttast í þetta....býst við svaka partýi...gott gott...en vitiði hvað svona partý kostar....multi monní...ég meina það...ég verð á hausnum eftir þetta....en maður gerir þetta svo sem ekki oft...svo þetta verður allt í lagi!

þriðjudagur, október 07, 2003

ég á afmæl'í dag, ég á afmæl'í dag, ég á afmæli núna, ég á afmæl'í dag! jei jei jei
jæja þá er maður orðin 25 ára...og vitiði hvað? ég er enn spurð um skilríki þegar ég fer út að skemmta mér....og sumir spurja mig líka hvort ég sé nokkuð komin með bílpróf...þetta er nú bara að verða fyndið....kannski á ég ekkert að vera að kvarta...seinna meir verð ég alveg rosa fegin að vera voða ungleg! En afmælis morgunmaturinn bíður (cherios).

fimmtudagur, október 02, 2003

Jæja þá er komin enn ein helgin...og hvað ætlar mín að gera? Ekkert...ekki frekar en venjulega...nema næstu helgi...PARTÝ...Loksins verður gert eitthvað almennilegt...ekki sitja bara heima og glápa á imbann. Og hvað er þetta rugl með það að hafa ekki forkeppni í eurovision....það er verið að drepa alveg niður stemninguna..segja að það sé of dýrt...ég meina...óþekktir listamenn eins og moi fá ekki að njóta sín....svo verður eitthvað lag sent án þess að þjóðin vilji það....ekki verðum við spurð hvort við viljum senda viðkomandi lag út...við verðum bara að loka trantinum og leyfa nokkrum manneskjum að ákveða fyrir alla þjóðina....well ef maður á að fara út í svoleiðis sálma þá er nú alveg hellingur sem við erum ekki spurð um...en ég ætla EKKI að fara út í svoleiðis sálma...syng frekar einhverja fallegri sálma " áfram krissmenn krossmenn "