Mánudagur til mæðu...
þetta er nú svo sem alveg ágætur mánudagur...ég er að vinna...get ekki sagt að það sé mikið að gera. Ætla að skella mér í bíó í kvöld...eða kannski frekar á eftir, ég og Gulli ætlum að skella okkur á Sound of thunder. Ég er alltaf til í að sjá svona myndir sem fjalla um tímavélar.
Djö...það er hrikalega kalt hérna....verð örugglega bara veik á því að vera hérna.
Alltaf er sama vesenið á mér...hvað á ég að gera, hef ég valið rétt...tók ég einhverja ólöglega beygju!!!!! Stundum finnst mér ég vera komin í svona vítahring, get ekki með nokkru móti komið mér út!
Ég er þó allavega búin að ákveða eitt...ég ætla til útlanda í vetur...svona helgarferð....helst til Parísar....kannski ég fari bara tvær ferðir...ein til Köben og svo til Parísar í vor.....ég ekkert pening fyrir þessu...en ég ætla samt....svona helst.
Ef einhver vill koma með mér...please speak up!!!
Jæja...ég ætla að þykjast vinna eitthvað.


