Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Svolítið langt síðan síðast

...........samt ekki mér að kenna...ok, kannski smá mér að kenna, en þegar maður er búinn að skrifa alveg rosa langt blogg og allt hverfur þá fer maður einfaldlega í fílu og nennir ekki að skrifa meira....bara bögg...

En annars er allt að komast í réttar skorður, ég er búin að ákveða lokaverkefni, ætla að vera með söngleikja námskeið í félagsmiðstöðinni í Hveragerði fyrir elsta stigið...það ætti að verða fjör :) og svo er það BA ritgerðin...er ekki alveg viss hvað ég ætla að skrifa um en ég er alveg viss um að það tengist söngleikjum á einhvern hátt....jeiiii...loksins fæ ég útrás fyrir söngleikja þörfina hjá mér!

Hei, svo fékk ég gigg sem dómari í söngkeppni í Grunnskólanum í Hveró...bara gaman að því...get þá líka séð hverskonar talentar eru í bænum :)

Tónleikarnir mínir verða 30.nóv, ég er auðvitað langt frá því að vera tilbúin í það, en það reddast örugglega einhvernvegin....ég meina, þessi önn bara hreinleiga flaug framhjá mér, hún er bara að verða búin og mér finnst ég ekki vera byrjuð...djíses kræst segi ég nú bara.

En nú ætla ég að drífa mig að pósta þetta áður en þetta dettur allt út hjá mér aftur, þá mundi ég ekki vera hamingjusöm manneskja....

Jæja, have fun og njótið vetrarins á meðan hann er :)

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Er ekki lífið yndislegt

Svona stundum allavega, kannski ekki alveg í augnablikinu, peningarnir mínir eru officially búnir núna, er farin að grafa í varasjóðinn, sem er ekki mikill! This sucks!!!!!!

En allavega þá er frí vika hjá okkur núna í skólanum, er að reyna að læra eitthvað, þarf að klára "ritgerð", skrifa upp gamla sálma og greina þá og grúska eitthvað í þeim, ekki alveg mitt svið, veit svo sem ekkert hvað kennarinn vill eða hvað ég á að gera, þetta verður mjög fróðlegt ;)

Ég ætla að halda áfram að reyna að klára eitthvað sem ég veit ekki hvað er...have fun allir saman

Me out