Lífið er!

Eða hvað!!!!

sunnudagur, febrúar 29, 2004

Nú á ég ekki eftir að geta labbað í langan tíma...fór aftur á hestbak í dag...fékk lánaðann hest sem ég má fá lánaðann þegar ég vil (jei) og ég, mamma og valdi fórum smá túr...og núna er ég að drepast...get varla labbað og hálsin og axlirnar eru svo aumar...alveg greinilegt að ég er ekki í þjálfun! En ætla nú samt að gera mér glatt kvöld með henni Lilju minni, það er að segja ef hún er búin að jafna sig á þynnkunni

Jæja...það er kominn sunnudagur og ég er að drepast í harpsperrum eftir hestamennskuna í gær
...en það er svo sem í lagi

Lilja mín...Til hamingju með prófið...I knew you could do it
eigum við ekki að vera góðar við okkur í kvöld...svona til að halda upp á það?

En allavega þá er helgin bara búin að vera fín...byrjaði á því að fá gott nudd, bakið mitt var komið í einn stóran hnút...þurfti að losa aðeins um og svo var þaðn hestbakið..alveg rosalega gaman að hossast á hestbaki...sjónvarpið stóð fyrir sínu..og svo er það bara að fara aftur í Reykjavík í dag, ég verð samt að segja að ég verð mjög auðveldlega eirðarlaus, langar til dæmis alveg rosalega að gera eitthvað skemmtilegt í dag...veit bara ekki alveg hvað!

Svo er það árshátíð um næstu helgi...og í hverju á ég að vera ...ekki hugmynd! Á að vera James Bond þema og ég stend alveg á gati...veit ekkert hvað maður á að gera...kannski bara fara í bol og skrifa 007 á hann...hehehe...veit ekki alveg...einhverjar hugmyndir? Please HELP!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Well well well, the old fashioned 17th century
vampire, one of my faves. You look for the good
things in life, you posses a lot of classical
class, and follow that of the original
vampires, you have no shame in what you are,
infact you embrace it, you love it and wouldn't
have it any other way. Your wealth is
unspeakable and your way of luring people with
your mystical ways and looks is amazing, and
most people would often call you The
Seductress. Please rate this quiz!


What Kind Of Vampire Would You Be? (Cool answers, AND FOR GILRS UNLESS YOU ARE A CROSSDRESSER)!
brought to you by Quizilla

Hvað finnst ykkur um þetta!

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Þetta var bara ágætur dagur...fór á burgerking og fór svo í bíó..sá somethings gotta give...ég mæli með henni..mjög fyndin.

Nú er ég brjáluð

Þeir segja fyrst að maður fái að heyra eurovisionlagið 1 mars og nú er verið að segja að það verði frumflutt 20 mars...hvað er að þessu fólki...ég þoli ekki svona!

En annars þá var rosa fjör í gær...Prófaði nýjan ítalskan stað Rossopomodoro (hehe i can do it again and again) og svo fór ég í fyrsta skiptið á Nasa, á Ný dönsk...þeir eru alltaf góðir, þó ég verð nú að segja að ég sakna hans Daniel svolítið...alltaf gaman að honum!

í dag verður bara slappað af...kannski maður skelli sér á Burger King, fyrst maður er nú í því að fara á nýja staði þessa helgina!

En hafið það gott í dag

föstudagur, febrúar 20, 2004

Mitt mottó í dag er "elskið friðinn og strjúkið kviðinn"

og

"öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir"

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Þetta kemur nú bara ekkert á óvart

DesireLove
Love. You Truly Desire Love. You long for someone
to hold you and take the pain away. You haven't
been in much relationships or you need to work
on how to handle them. You always seem lost in
a daydream about the person you care about
most.

PLEASE RATE


What Do You Truly Desire? *PICS*
brought to you by Quizilla

I knew it....we were born to be together

Will Turner is the caring young man from pirates of the caribbean. he will adore you till the day that he dies
You are going to Marry orlando Bloom. He will
always treat you right and is very romantic. He
will do anything for you. He is very polite and
has deep brown eyes and is very good looking
(which is another plus!). He can make anything
cheesy look really hot(like sliding down stairs
on a shield shooting arrows or wearing pointy
ears for example). Congrats!!


Which male celebrity are you going to marry? (now 12 (i just added more, and still more to come!)results that have pics!)
brought to you by Quizilla

Þá er það komið á hreint!
Ég er að missa íbúðina hérna á hringbrautinni, búið að tilkynna mér það að 1 júní verður að vera búið að tæma íbúðina því hún er að fara á sölu! now that sucks
Svo er líka verið að rugla í mér með námið...gerðu þetta...ekki gera þetta...gerðu hitt...ég er alveg að verða brjáluð!
Ætli ég endi ekki bara á því að flytja aftur heim til mömmu og pabba, haldi áfram í tónó í eitt ár og fari svo út að læra...eða eitthvað...ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að gera...ohhh kemur í ljós

Það verður alveg rosalega mikið að gera um helgina...Stelpukvöld, árshátíð, meira stelpukvöld og eitthvað fleira skemmtilegt!

mánudagur, febrúar 16, 2004

Æðislegar hamingjuóskir til hennar Siggu...

hún á afmælí dag, hún á afmælí dag, hún á afmælún Sigga hún á afmælí dag...vei

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ

Ég held að stundum þá hugsa ég of mikið! Ég hef aldrei skilið fólk sem á auðvelt með að ákveða sig...ég hef aldrei verið svoleiðis...ég á rosalega erfitt með að ákveða mig...ég er alltaf hrædd um að þegar ég loks ákveð mig þá sé það röng ákvörðun...og hvernig getur maður lifað lífinu þannig? Ég veit ekki...svo er maður að hugsa um ótrúlegustu hluti...það er svo margt sem manni langar að gera eða ætlar að gera en það er alltaf eitthvað sem segir manni...NEI...þetta áttu ekki að gera...en afhverju ekki? Maður er alltaf hræddur um að einhver dæmi mann eða eitthvað...ohh well...ég ætla að drífa mig í skólan...

Litli ruglhausinn kveður í bili!

laugardagur, febrúar 14, 2004

jei...ég fékk loks að komast á hestbak! Það var rosa fjör...hef ekki farið á bak í mörg ár og hesturinn vildi bara brokka á fullu með mig...en samt rosa gaman...get ekki beðið eftir því að komast aftur! Er með smá harðsperrur eftir þetta en það er bara gaman.

Ég var að pæla...hversu miklu skiptir aldursmunur í sambandi? Það virðist sem það sé í lagi þegar strákar finna sér eina jafnvel tíu árum yngri en ekki í lagi fyrir stelpur að gera hið sama...þó að það sé nú að koma í tísku! Hvaða álit hafið þið...endilega segið mér frá því. Ég meina hvað mynduð þið segja ef ég til dæmis kæmi með einn '85 módel upp á arminn...er það í lagi eða er það bara ógeðslegt? Hvað fynnst ykkur?

............................................og til að leiðrétta allan miskilning þá, nei ég er ekki komin með einn svo ungan....allavega ekki enn ;)

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

Ég vaknaði snemma í morgun og fór í sprautur...fékk ekki að fara síðast útaf kvefi og ég er enn hóstandi, með eytlabólgu og eitthvað...en ég fór samt...hélt hóstanum niðri og sagðist vera í lagi..ég meina ég er nú alveg að verða betri...vantar bara herslumuninn! Get nú samt ekkert sungið ennþá...verð að bíða fram yfir helgi...andsk. kvef...en allt tekur þetta enda!

Jæja þá er það Jónsi kallinn sem fer fyrir Íslandshönd til Istanbúl í maí...gæti svo sem verið verra...hann getur sungið, er flottur....mjög flottur...sérstaklega handleggirnir slurp..og svo er hann mjög skemmtilegur á sviði....ég segi bara gangi honum vel...er samt orðin forvitin með lagið...við fáum ekkert að vita fyrr en 1 mars...hundfúlt! En ég setti hér við hlið nokkra eurovisionhlekki ef það eru einhverjir þarna sem eru eins spenntir og ég ;)

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

hvað get ég sagt....life sucks...búin að vera veik...það er að segja með kvef og eitlabólgu og þessar líka rosalegu hellur í viku og ekkert lát á! er að verða geðveik! maður getur nú dottið í þunglyndi af svona löguðu....varla búin að sofa í viku þannig að ég er BARA þreytt og á svo að mæta í skólann...má ekki við því að vera veik...en ég hef bara ekki fundið orku til að læra eða einbeitinguna þannig að ég á eftir að gera allt svoleiðis! Svo er náttúrulega allt annað að pirra mig...afhverju getur lífið ekki verið auðvelt? Ég er alveg að gefast upp á þessu öllu saman...ég meina það fer einhvernvegin allt úrskeiðis og svo veit ég varla hvað ég vil heldur...en hvernig á maður að geta vitað hvað maður vill...því loksins þegar maður fær það sem maður vill þá vill maður það ekki lengur...þannig að ég hef haldið því fram að ég viti hvað ég vil þegar kemur að því...en ég er orðin leið á því að þurfa að bíða en svo er sagt að maður eigi ekki að bíða þannig að ég veit bara ekkert hvernig ég á að haga mér. Það er eins og maður sé að bíða eftir lífinu þó að lífið hafi byrjað þegar maður fæddist...Þessi óendanlega óhamingja er að gera mig brjálaða..ahha þarna sagði ég það...ég er alveg drullu óhamingjusöm...samt er ég að læra það eina sem ég vil læra (að ég held) búin að þurfa að standa á eigin fótum og geri enn (og bara þræl góð í því) á vin sem stendur með mér í gegnum allt (thanx honey) og frábæra fjölskyldu sem hjálpa mér og standa við bakið á mér...en samt er ég drullu leið...alveg er þetta óþolandi.

og annað....ÉG HATA BÓNUS
ljót búð...ekkert til þarna og mér er alveg sama þótt þetta sé ódýr búð...hún er samt ljót!


miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Djöfulsins...ég hefði átt að segja meira í gær...var að tala um hvað ég væri búin að vera heppin í allan vetur...ekkert búin að missa röddina og allt gengið vel...og vitiði hvað...sama dag missti ég röddina...svaf ekkert í nótt og mér líður ömurlega..ég tala eins og sjóræningi sem er búinn að drekka alltof mikið! Verð nú samt að fara í skólann í dag...má ekki við því að sitja heima í vekindum...þó að ég væri ekkert á móti því að vera bara í rúminu í dag...en maður má víst ekki leyfa sér að vera veikur! Kannski fer ég bara í annan tímann...sem betur fer þarf ég ekki að syngja fyrr en í næstu viku!
Jæja ég ætla að aumingjast fram úr rúminu!

þriðjudagur, febrúar 03, 2004



create your own visited country map
or write about it on the open travel guide


þetta eru löndin sem ég hef heimsótt...virðist vera hálf einhæft þegar maður horfir svona á þetta...þyrfti að komast lengra í burtu

mánudagur, febrúar 02, 2004

Rosa góð helgi búin!
Græna partýið gekk bara vel...þó að það hefði mátt halda að það hefðu verið tvö partýi í þessu litla plássi! En ég skemmti mér alveg rosa vel og nú þarf ég bara að framkalla filmuna mína, skanna inn myndirnar og setja þær á netið...en þið verðið samt að bíð þangað til um helgina!

Ég var only the lonely á sunnudaginn...en fann loks vini þegar ég leitaði til fjölskyldunnar...fór í súpu til frænfólks og dró svo Eddu mágkonu með mér í bíó...hún náttúrulega gat ekki hætt að hafa áhyggjur af barninu sínu...en er það svo sem ekki eðlilegt!

Svo hlakka ég rosa til að komast heim til Hveragerðis...og skoða hestana...! Já fjölskyldan mín er búin að hella sér í hestamennsku, Fengu stað í hesthúsi fyrir tvo hesta og fengu svo lánaða hestana..þannig að núna er ég bara að fara á hestbak um hverja helgi...og ég verð að segja að mig hlakkar rosa til...hef alltaf verið hrifin af hestum og finnst æðislegt á hestbaki...þó að ég var nú bara um 14 ára þegar ég fór síðast á bak.

Ætli ég verði ekki að hella mér í lærdóm núna! Á eftir að læra ógeðslega mikið...en svo er það SURVIVER ALLSTAR í kvöld.....Go Rubert og Ethan...jei jei jei!