Hún á afmæl'í dag, hún á afmæl'í dag hún á afmælún Lilja, hún á afmæl'í dag ..... jei ... til hamingju með afmælið dúllan mín og njóttu dagsins...ég hugsa rosa stíft til þín...vona að þú fáir hugskeytin beint í æð ;) Vonandi líkar þér gjafirnar ;)
En víst ég er nú byrjuð þá er best að skrifa nokkur orð...Jólin á morgun og allt orðið fínt á heimilinu...ég eyddi tveimur dögum í það að laga til í herberginu mínu...tók uppúr fjórum kössum og henti tveimur ruslapokum af drasli...samt kem ég dótinu hvergi fyrir...er ekki með skáp og ekkert geymslupláss...keypti einhverja kassa í europris og staflaði í eitt hornið...svo núna er hægt að ganga á gólfinu hjá mér...hlakka rosa til að flytja í bæinn...það verður erfitt því ég á ekki pening fyrir því...en það verður voða gott að vera bara ein.
Jólatréð er komið upp og Valdi bróðir getur ekki beðið eftir því að fá að setja pakkana undir tréð...en það þarf nú að skúra fyrst og svoleiðis...alltaf verið að pína littla krakka ;) hehehe...
Ég fór út að borða um daginn, fór á Caruso með Halldísi og Dóru Ernu...það var alveg yndislegt að fara þangað aftur...sátum og spjölluðum í næstum þrjá tíma og borðuðum þokkalega yfir okkur...en það var æði...verð að gera þetta oftar...hef ekki farið út að borða síðan Lilja fór út...það er ekki gott að missa veitingahúsa og bíó félagann sinn....
Talaði svo við Tedda um daginn....hann er svo mikil dúlla ;) hann hefur það mjög gott og hann og Henrý eru jafn hamingjusamir og alltaf...hann lofaði mér vídeókvöldi strax eftir áramót...ég bíð spennt...þeir ætla bara að hafa það kósí um jólin...bara tveir einir í kotinu....koma ekkert austur...verð að segja að ég mun sakna þess...því öll mín fjölskylda hefur alltaf sagt að þau vitit að það er komin jól þegar þeir tveir koma við á aðfangadag....en jæja, svo fæ ég engar þorláksmessukökur eða brauðrétt í dag...ekkert gaman...ég ætti bara að fara heim til Lilju á Selfoss og heimta kökur....hehehe
en jæja..ég ætla að fara að gera eitthvað að viti...eins og að borða eða eitthvað..alltaf vit í því...
Gleðileg jól allir saman, njótið jólanna og við sjáumst hress....næst....
Bæjó
P.S. Knús og kossar til Lilju