Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Ný síða

Ég er komin með nýja síðu...gafst upp á þessari, vona að nýja síðan verði betri :)

http://heidamar.bloggar.is/

mánudagur, janúar 15, 2007

Jahérna...ég hef ekkert getað bloggað lengi útaf einhverju veseni....og svo skrifaði ég blogg í word og gerða copy-paste, en blogger vill ekki leyfa mér að setja það inn...kemur bara error þegar ég ætla að "Publish" reyndi samt að breyta letri og gera einhverjar kúnstir...en blogger vill bara publisha ef ég skrifa beint inn....asnalegt...þannig að ef ég ætla að gera langa posta þá kemur alltaf error líka....þannig að niðurstaðan er að Blogger er illa við mig og ég er komin í svaka fílu...........................

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðilegt nýtt ár

Þá er komið árið 2007, held að þetta verði bara fínt ár....vona ég, ég ætla mér að gera svo mikið en svo er alltaf spurningin hvort mér takist það.

Ég ætla að njóta þess að vera í fríi þessa vikuna og svo byrjar alvaran í næstu viku, þarf að undirbúa lokaverkefnið mitt....því það byrjar bara í næstu viku eða eitthvað og ég veit varla hvernig ég ætla að hafa það....er auðvita ekki búin að fá neinn leiðbeinanda ennþá, veit ekkert hvernig skólinn verður og allar bækurnar sem ég ætla að nota fyrir BA ritgerðina mína eru ekki til á íslandi og ég er svo vitlaus að ég veit ekkert hvernig ég á að snúa mér í þeim málunum, þannig að eins og er er árið 2007.......uhhhh......veit bara alls ekki hvernig allt verður

En þetta hlýtur allt að reddast....í dag er ég í fríi.......

see ya later
knús