Lífið er!

Eða hvað!!!!

laugardagur, nóvember 29, 2003

Jæja þá er orðið svolítið jólalegt hérna á hringbrautinna...búin að laga til (gólfin fá nú samt að bíða eftir Dóra) hehehehe

aðventukransinn kominn á borðið, smákökur og klementínur í skál! Getur ekki verið betra!
Svo kemur auðvitað hugsun dagsins....Stundum heldur maður að manni sé alveg sama um eitthvað en svo kemur eitthvað upp á og maður kemst að því að manni er ekki sama og maður fer að ergja sig yfir einhverju sem hefði átt að fara löngu farið úr hausnum...Hvað á maður að gera þá...æ....vá...ég held að ég fái mér bara smákökur og svo osta og kex í kvöld og verð bara svolítið góð við mig...Gleðilega aðventu...á morgun og ekki gleyma að opna dagatalið í fyrramálið ;)

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Þetta aftur á móti er alveg ég....ohhh...ég er svo mikið svona :)



Romantic movie! You probably won't star in a porno
anytime soon. You seem to be really into the
whole "love" thing...romantic sex
with perfumed sheets and candles all over the
place. You're probably a hopeless romantic. You
value sex and respect your partner too much to
do anything like porn. AWWWWWW! <3


What kind of porno would you star in?
brought to you by Quizilla

Ég er ekki viss um að þetta sé rétt!
CHARIOT
CHARIOT
"the generator, motivator,
traveler"

You are gifted in seeting ideas, projects, and life
experiences into motion and can accomplish many
things simultaneously. You dislike things that
are routine and show a resistance to
specialization. You have a strong
intorspective nature and display a need to move
in the true inner direction of the spirit. The
charioter holds the Wheel of Fortune which
means that he can turn any direction with
fortunate results.


which major arcana of the thoth tarot deck are you? short, with pictures and detailed results
brought to you by Quizilla

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Hafið þið einhverntíman hugsað út í það hvernig við erum...þá er ég að meina að sumir eru feimnir og aðrir eru alltaf stressaðir svo er þetta fólk sem aldrei virðist stressað og þeir sem eru svo opnir og segja öllum, hvort sem þeir vilja heyra það eða ekki, hvað þeim finnst. Þetta er nú líka í genunum...þannig að ef þú átt ófeimna foreldra þá er líklegt að þú sért ekki feiminn...en hvernig er það með þá sem vita hvað þeir geta og vita líka að það þarf ekki að stressa sig yfir hlutunum en eru samt svo feimnir að þeir geta varla sagt orð án þess að kúgast eða kikna í hnjánum....eða stressast svo mikið upp að þeir sitja tímunum saman á klósettinu...er það ekki frekar ósanngjarnt...það er eins og hvað sem amður gerir þá getur maður ekki losnað við þetta! Hvað er til ráða...ekki getur maður tekið kæruleysispillur allan daginn...ég meina afhverju eru sumir svona þótt að þeir viti að þess þarf ekki?

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Það er sunnudagsmorgun og ógeðslegt veður! Mikið rok og rigning!
í svona veðri á maður að vera undir sæng með vídeó og nammi. En ætli ég verði ekki að fara að læra...þýðir ekki að vera með leti endalaust. tvö próf í vikunni og svoleiðis...hef nú samt ekkert voða áhyggjur af þeim.
Ég er eitthvað svo tóm núna...reyni að finna eitthvað sniðugt til að segja en ég er bara ekkert sniðug núna. Segið mér eitt...eru þið viss hvað þið viljið gera í lífinu...eruð þið viss að það sem þið eruð að læra er það sem þið viljið gera. ég veit ekki...stundum held ég að ég sé að gera einhverja vitleysu...en þá fer ég að hugsa hvað annað kæmi til greina...og ekkert kemur...er það ekki svolítið sorglegt þegar maður hefur ekki einu sinni Plan B. Ég veit um eina sem var búin að læra hárgreiðslu en fékk svo ofnæmi fyrir því og þá hafði hún ekkert...enga aðra menntun...er svo núna búin að koma sér vel fyrir með góða vinnu en hefur alltaf aðra drauma sem hún fær ekki að uppfylla..það fynnst mér sorglegt. Svona getur lífið tekið stjórnina...þó að stundum vildi ég að lífið mundi taka stjórn á mér því þá hefði ég allaveg einhverja hugmynd um hvað ég er að gera....æ...well...segi bara Góðan sunnudag og látið ykkur líða vel undir sæng ;)

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Það er alltaf gaman að láta hræða sig...það er að segja ef maður er alveg öruggur í sófanum og tilbúinn að setja peysuna upp fyrir haus!...ég er algjör hryllingsmynda fíkill....búin að sjá texas chainsaw massacre..sem er geggjuð...mikið öskrað!! svo var það wrong turn...sem bara alveg ágæt en því miður með mjög auðveldan endi..var ekki alveg sátt við það! En allavega Hryllingsmyndir rúla! það er samt voða fyndið hvað krakkar í svona myndum gera alltaf það sama... splitta upp, labba ein út í skógi....fara alltaf upp stigann...ég meina DON'T DO IT segi ég nú bara...

mánudagur, nóvember 17, 2003

Jæja Helgin búin og komin ný vika! Þetta var nú ágætis helgi...gerði nú samt ekki mikið...fór í góðan göngutúr og slakaði svo bara á í heitapottinum...það er alltaf gaman að koma í foreldrahús og geta notað pottinn ;)
en svo núna er allt í einu svo mikið að gera að ég veit ekki hvar ég á að finna tíma til þess að læra...þvílíkt bögg!
Svo var ég að hugsa...afhverju vill fólk vera í sambandi! Viljum við öll bara fá ást eða er það einmannaleiki eða hvað er það...kannski það að vilja ekki enda lífið einn. eða kannski bara til þess að geta tekið utan um einhvern sem elskar mann þegar maður hrekkur upp með hræðslukast! Hvur veit?

föstudagur, nóvember 14, 2003

Föstudags morgun og ég vöknuð og byrjuð að vinna! Það lýtur allt út fyrir það að helgin verði bara róleg...það er ágætt líka....En ég fór á veisluna síðasta miðvikudag...geggjað stykki...sat við veisluborðið og allt...alveg rosalegt...þetta var bara lífsreynsla...ég er sko að tala um leikritið veisluna...sko...hehehe...ég táraðist tvisvar....ótrúlegt...og sýndi alveg hversu góða leikara við eigum hérna á þessu litla landi...alveg ótrúlegt...var ég kannski búin að segja það áður...ohh well...geggjað gaman í leikhúsi ;)

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

það er kominn samruni í SURVIVER...og ég get bara ekki með nokkru móti ákveðið mig hverjum ég ætla að halda með...það eru þó nokkuð margir sem eru frábærir...ég mundi samt ekkert vera sár ef Rubert mundi vinna GO RUBERT. Loks gat maður litið upp úr lærdómnum...smá mikið að gera......en á morgun...Leikhús...oh...get ekki beðið..það verður æði ;) ég er svo sybbin alveg að detta niður....ætla nú samt ekki að fara að sofa alveg strax....vitiði að heilinn minn ákvað einn daginn að vinna öðruvísi en hann er vanur...fékk smá vírus einn daginn, greyið, og þá ruglaðist hann eitthvað og vinnur núna öðruvísi úr hreyfingum! Svo er ekkert hægt að gera. Alveg týpískt ég....eitt enn sem kallast galli 3-2 fyrir mér...hehehe
jæja...ég ætla að speisa út yfir "THREE AMIGOS HUU!"

mánudagur, nóvember 10, 2003

jæja þá er mánudagur og ný vika! Afmælið hjá honum Gulla gékk bara prýðilega....allavega skemmti ég mér vel. Svo er SURVIVER í kvöld....hlýtur að verða sameining núna...rosa spenna hvaða outkast komast inn!

föstudagur, nóvember 07, 2003

Föstudagur...ekkert að gerast nema skúra og horfa á Idol í kvöld!
Ég fór með bróðir mínum á Bingó í gær...ekki margir stórir vinningar en ég held að við systkinin höfum unnið einn af bestu vinningunum....við unnum konfekt ístertu og kassa af ístoppum....fannst það bara vel gert af okkur ;)

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

stundum getur maður gert eitthvað svo heimskulegt að maður situr á eftir og getur ekki gert neitt annað en að velta sér upp úr sinni eigin heimsku! En hvað gerist ef maður tekur aldrei áhættu...jú þá er maður seif frá einhverjum heimskulegum gerðum en aftur á móti þá gerist aldrei neitt...en jiii þegar maður tekur upp á að gera eitthvað sem endar á þaví að vera vandræðalegt og heimskulegt þá getur maður einfalldlega ekki hugsað um annað og dregur sig niður og setur hausinn undir kodda og öskrar!
Jæja ég ætla að byrja nýjan dag þrátt fyrir að hausinn á mér sé að springa...HAUSVERKUR!!!!

mánudagur, nóvember 03, 2003

Hvað er þetta með ökumenn í Reykjavík! Ég veit ekki alveg hvar þetta fólk fékk ökuskírteini..ég meina það er ótrúlegt að ég hafi ekki lent í rosa slysi...það er alltaf verið að keyra í veg fyrir mig...og í dag þá var ég að bakka úr stæði og þegar ég var alveg að komast úr stæðinu þá datt einhverjum asna í hug að bakka úr stæði á móti mér..ég þurfti bara gjöra svo vel að setja í dræf og drífa mig aftur í stæðið því helvítið ætlaði bara að keyra mig niður. svo er frekja og eigingirni alveg að drepa ökumenn....ekkert að hugsa um það að það sé annað fólk að keyra á sömu götunni....ohhh ég get endalaust kvartað yfir þessu...svo lenti amma mín í árekstri...eitthvað fífl ákvað að skipta um akrein en nennti náttúrulega ekki að athuga hvort það væri einhver á hinni akreininni svo hann skall beint á bílinn hennar ömmu og dúndraði henni útaf veginum..þetta er náttúrulega ekki í lagi....svo eru brjálæðingarnir ekki bara inní bílunum því þeir eru nokkrir fyrir utan þá líka....sjáum til hvað pirrar mig á morgun hehehe