Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Jæja...loks komst ég í tölvu...maður er alveg vængbrotinn þegar maður er ekki nettengdur, En hún Enea frænka mín er veik og ég bauðst til þess að passa hana í dag...hún er nú meiri dúllan. En annars er svo sem ekkert mikið að frétta af mér...ég var veik alla helgina....alveg hrikalegt að vera veikur og vera bara einn heima...enginn hringir og maður finnst maður alveg skilinn eftir af heiminum, maður vill bara hafa einhvern nálægan þegar maður er veikur...mamma mín hringdi í mig og hún fékk fyrirlestur um það hvað öllum væri sama um mig....en svona er maður þegar maður er veikur...maður vill láta einhvern vafstra í kringum sig og það er bara erfitt að vera einn...var líka svona þegar ég fékk ælupestina í frakklandi, var voða ein, enginn í húsinu og ég ælandi og grenjandi í næstum því heila viku og hafði engan til að vera hjá mér...það er bara erfitt!

En ég vil þakka ykkur stelpur að koma til mín á föstudaginn...það var voða gott að sjá ykkur.........

jæja...ég verð að halda áfram að læra ef ég á að geta mætt í tíma á morgun....svo verður voða fín helgi...fer heim á föstudag og svo förum við fjölskyldan á Edith piaf á laugardaginn...ætlaði að fara á ball í skólanum...en ég veit ekki hvort ég nenni því...alveg takmarkað hvað maður nennir svona einn...Lilja mín...þetta er ekki hægt...ég ætti að vera að draga þig með mér á svona hluti...en jæja...

Have fun allir saman og njótið þess að .... well, njótið ykkar bara

Love Heiða

miðvikudagur, janúar 12, 2005

jæja...þá er ég flutt og líður bara alveg ágætlega...er búin að eyða ógeðslega miklum pening sem ég á ekki og veit ekki hvernig ég á að lifa árið af en það er allt annar handleggur.

Er í Hveró núna...bíllinn minn er í viðgerð...vonandi það síðasta og svo fer ég aftur í bæinn...skólinn er byrjaður aftur, maður þarf sem sagt að fara að gera eitthvað af viti,

svo var ég að pæla í því að hafa opið hús á föstudagskvöldið, ekkert merkilegt, bara þeir sem vilja koma í heimsókn mega koma og það verður snakk á boðstólnum en ekkert vott...ef þið skiljið hvað ég meina...þannig að ef þið vilja kíkja á föstudagskvöldið í smá hóf þá er ykkur velkomið að mæta ;)

föstudagur, janúar 07, 2005

ég held að ég hafi verið aðeins of fljót á mér að halda að árið byrji vel...það byrjar bara alls ekki vel...allt í steik, Bíllinn minn ákvað að mótmæla flutningunum hjá mér svo núna er ég ekki enn komin í bæinn og bíllinn heimtar fullt af peningum af mér...ekki sniðugt...en ég er búin að vera í þunglyndi í gær og í dag svo núna ætla ég að reyna að brosa og segja...allt verður í lagi...þetta reddast...vonandi verð ég komin í bæinn í kvöld...sár fátæk en samt komin í íbúðina...vonandi...ef ekkert annað ætlar að koma upp á...ég meina það...búslóðin mín er búin að vera í bílnum í tvo daga...þetta er náttúrulega ekki eðlilegt.

En það er best að smæla framan í heiminn.

mánudagur, janúar 03, 2005

Gleðilegt 2005

Nýtt ár, ný byrjun.

Verð að segja að ég var rosa ánægð með skaupið þetta árið...ég grenjaði úr hlátri og hélt ég myndi nú alveg missa mig þegar Davíð settist upp ;)

Áramótin voru voða fín...góður matur, góður félagskapur og skemmtilegt ball...getur ekki verið betra....nei nú lýg ég...þetta hefði verið betra ef hún Lilja mín hefði komið á ballið með mér ;) miss ya honey

nú er ég að fara með húsaleigu samninginn upp á bæjó í dag og svo flyt ég einhverntíman í vikunni.

Jæja...ekki lengra í dag....have a nice day!

kveðja
Heiða