ég skrifa nú ekki mikið núna, þar sem ég er svo hrikalega lengi að pikka...eftir að ég var búin að drepast í hendinni í fjóra daga og ekkert virtist lagast þá skellti ég mér upp á slysó til að láta kíkja á hendina á mér...ég var þar í þrjá tíma á laugardagskvöldi og kom út í gifsi, mér tókst að brjóta mig...í fyrsta skiptið á ævinni! alveg hrikalegt....svo þarf ég að vera með gifs í óperusýningunum....en það er svo sem ekkert rosalega áberandi...en PIRRANDI.
Loksins búin að fá úr öllum skriflegu fögunum mínum og gékk bara ágætlega, tvær níur og ein átta, ég held að það se bara ágætt.


