Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, september 30, 2003

Jibbí....mér tókst það...ég kláraði lærdóminn...virkaði allt eftir að orkan var sett á réttan stað...en vitiði hvað? ég fer í tíma á morgun og þá fæ ég bara annað ljótt hljómfræði verkefni...it never stops...arghh! Nei nei...þetta er ekki svo slæmt...tekst allt á endanum...hvar sem hann nú er!

Ég get ekki fyrir mitt litla líf verið að læra núna...ég er búin að liggja yfir lærdómnum í allan dag...og ekkert gerist...ég virðist bara ekki getað einbeitt mér..það fer bara allt í vitleysu! hvað á maður að gera í svona dilemmu? Ég veit ekki...sitja og horfa út í loftið...eða gera bara eins og ég er að gera núna, blogga og kvarta undan þessu...það er náttúrulega besta hugmyndin...mig langar bara að gera eitthvað hugsunarlaust í dag...fara í bíó eða eitthvað! Ég er einfalldlega ekki í stuði til að læra núna...en þá kemur vandinn...Ég VERÐ að læra. Ohh ég er alveg að farast hérna...kannski ég fari bara að fá mér að borða...fá mér smá orku og setjast svo aftur við þetta ljóta hljómfræði verkefni...já ég geri það bara...takk fyrir hjálpina adios ;)

mánudagur, september 29, 2003

Þá er kominn enn einn mánudagurinn! Það var rosa gaman í Þórsmörk...frekar kalt og mikið labbað og mikið sungið :)
Ég var að hugsa (oó...það veitir ekki á gott) Ást...Hvað þýðir þetta orð...getur maður orðið ástfanginn oft á ævinni....eða verður maður aldrei ástfanginn...Það er búið að mata mann svo mikið á því hvernig ást eigi að vera...maður horfir á kvikmyndir og vill varla sætta sig við neitt minna en svoleiðis ást...sem er náttúrulega ekki raunverulegt........eða hvað...getur fólk verið virkilega hamingjusamt og ástfangið....svo er það annað...hvernig getur maður verið svo ástfanginn einn daginn að maður sér ekki skýrt og svo nokkrum árum seinna þá finnur maður ekki neitt...maður er enn ástfanginn af þessum manni en þegar maður horfir á manninn þá er maður ekki ástfanginn af þessum manni...heldur ímyndinni af þessum manni...hvernig getur það gerst...breytist maður svona mikið á fjórum árum....stundum hugsar maður...hvað sá ég eiginlega við þennan mann...en samt var maður svo ástfangin að það var hætt að vera fyndið! Hvað með gæjann sem hún hitti í grunnskóla og varð hrifinn af frá því hún sá hann fyrst...svo liðu árin og alltaf eru þau bestu vinir en alltaf líka einhver neisti en aldrei neitt gerist...svo alltaf þegar annar aðilinn ætlar að gera eitthvað í málinu þá er hinn aðilinn á föstu svo líða enn fleiri ár og hún heldur að hún sé löngu hætt að hugsa um hann en alltaf hugsar hún til hans og fær kökk í hálsinn...er það eitthvað sem á að halda í eða er það bara ímyndun sem hún á að gleyma...er hún ástfangin af þessum manni og hefur aldrei þorað að leyfa sér að vera hamingjusöm eða er hún bara að búa eitthvað til í hausnum á sér! Ætli maður fái nokkurntíman að vita það.
Jæja best að drífa sig til hennar Lilja elsku....SURVIVOR....

fimmtudagur, september 25, 2003

jæja...það er kominn fimmtudagur og styttist í helgina...ég ætla að skella mér í þórsmörk og hafa gaman af...Enginn söngtími í dag bara leiðinleg tónheyrn....alveg hræðilegt fag það, en verð víst að láta mig hafa það! Nú er besta vinkona mín loks búin að krækja sér í gæja...skilur mig bara eftir....En til hamingju...kominn tími til heheheh

þriðjudagur, september 23, 2003

Getur einhver sagt mér hvernig ég færi þetta forláta comment aðeins upp????? ARGH!!!!

mánudagur, september 22, 2003

Jæja, þá er kominn ný vika...helgin var fín...fyrir utan smá hausverk og pirring...ég meina þegar maður fer á veitingastað þá vill maður fá góða þjónustu...ég fékk mér kók og þegar kókið kom þá var það svo yfirfullt að þjónustustúlkan helti yfir allt borðið hjá mér...svo labbaði hún bara í burtu og ætlaði EKKI að þrífa það upp...ekki fyrr en ég kallaði í hana aftur og bað hana að þrífa borðið...svona hlutir gera mig pirraða! en nóg um pirring, það er ný vika og ég aldrei þessu vant er bara í góðu skapi á mánudegi (vona að það haldi út) :) læt ykkur vita seinna....bæjó...

fimmtudagur, september 18, 2003

Þá er maður kominn til Hveragerðis (home sweet home) Mér fannst ég vera komin í teiknimynd á leiðinni hingað...næstum heiðskírt og bjart, fjöllin svo hrein...þetta var eins og að horfa á málverk...á svoleiðis stundum finnst mér svo óraunverulegt að vera á lífi...að lifa, ganga um og anda...hafið þið einhverntíman hugsað um sálina..sumir trúa ekki á sálina...en hvernig værum við ef við hefðum ekki sálina...værum við þá ekki bara eins og vélmenni...við höfum svo margar tilfinningar og mest allan tíman vitum við ekki einu sinni hvað við erum að hugsa, hvað við viljum eða hvernig í ósköpunum við eigum að taka til í hausnum á okkur. Þá fer ég að hugsa...það hlýtur að vera eitthvað til sem er yfirnáttúrulegt...annars værum við varla eins og við erum...það er bara spurning um hvað það er. Svo hugsar maður líka hvað gerist fyrir sálina þegar líkaminn deyr...deyr sálin líka eða er það eins og búddistarnir segja : sálin er eins og kaffi...hún er í bolla og ef bollinn dettur og brotnar þá er bollinn ekki lengur bolli heldur mörg brot en þótt kaffið slettist á vegginn eða á gólfið þá er kaffið samt ennþá kaffi...og þegar við þurkum kaffið upp með tusku þá er kaffið ennþá kaffi í tuskunni...sem sagt kaffið verður alltaf kaffi þótt það sé ekki lengur í bollanum. Ég veit ekki...maður getur svo sem hugsað um þetta endalaust...maður fær aldrei nein svör...maður verður bara að ákveða sig hvað maður trúir á og vona það besta. Er það ekki bara? En nóg af þessu..ég er að fara að borða grillaðan kjúkling á bjórdós...jamm...á bjórdós. Bjórdós sem er hálf full (af bjór) er troðið inn í kjúklinginn og svo er kjúklingnum og bjórdósinni skellt á grillið...hverjum datt það í hug...en snilld all the same! well bon appétit

miðvikudagur, september 17, 2003

jæja...nú er að koma einhver mynd á þetta..Lilja er búin að vera svo góð að hjálpa mér ;) thanx Lilja...en samt eru framkvæmdirnar ekki búnar ennþá...nenni bara ekki að gera meira í bili!............................................................Vá er búin að sitja hérna og hugsa og ég hef helling að hugsa en einhvernvegin get ég ekki sett það niður...held ég sé orðin of þreytt til að reyna að greiða úr hugsunum mínum....en jæja...nóg...ég....farin..........

jæja...best að reyna að skrifa eitthvað...ég á nú að vera að læra núna..ja allaveganna að æfa sönginn minn...ótrúlegt hvað maður getur verið latur svona í byrjun skólaárs...á maður ekki að vera fullur af orku og tilbúinn að takast á við veturinn...en nei...ég hugsa bara...djí hvað ég nenni þessu ekki...en svo nenni ég heldur ekki að sitja bara heima og gera ekki neitt...maður getur orðir rosalega þreyttur á að gera ekki neitt...bara bakverkur og læti. En svona getur þetta verið...jæja ég verð að fara að gera eitthvað...ég ætla að fara að vekja nágrannanna með nokkrum söng sveiflum :) hehehe

þriðjudagur, september 16, 2003

ok.....einu sinni enn...ætla að prufa íslenska stafi...ég held að ég sé ekki gerð fyrir svona...en here goes

prufa tvö!!

jæja best að prófa þetta....spurning hvort þetta virkar nokkuð hjá mér