Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, september 30, 2005

Föstudagur í dag

Tíminn líður....alltof hratt....fór í prufu fyrir óperustúdíóið í vikunni....það náttúrulega gékk alveg hrikalega illa.....alveg ótrúlegt að maður getur stundum ekki stjórnað því sem kemur út úr manni....well....get ekki gert meira í því...

Búin að redda mér vinnu...Peningarnir mínir eru of fljótir að eyðast upp þannig að nú er ég byrjuð að vinna í Heilsutek í Hveragerði...bara aðra hvora helgi og einhverja daga......en ég fæ þó einhvern pening.

Svo langar mig að djamma eitthvað næsta föstudag....er einhver sem vill koma með mér?

Kveðja
Heiða

þriðjudagur, september 27, 2005

Ég hata spurningar!!!!!!!

1. Hvað er klukkan?10.55
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu ? Heiða Margrét Guðmundsdóttir
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Heiða
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? fékk ekki köku.
5. Gæludýr? Kisan mín hún Krútta
6. Hár? rauðljóshærð.
7. Göt? Eyru,
8. Fæðingarstaður? Egilstaðir
9. Hvar býrðu? Hveragerði
10. Uppáhaldsmatur? uhhh...get ekki alveg svarað því
11. Einhvern tíma elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Held ekki
12. Gulrót eða beikonbitar? Beikon...namm
13. Uppáhalds vikudagur? föstudagur
14. Uppáhalds veitingastaður? Carusó.
15. Uppáhalds blóm? Rósir
16. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Handbolta
17. Uppáhalds drykkur? eitthvað voða frískandi
19. Disney eða Warner brothers? Disney
20. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? subway (nýbúin að uppgötva það :) )
21. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? parket
22. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? svo langt síðan síðast að ég man það ekki
23. Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Vil aldrei botna heimildina.
24. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? horfi á imbann...fer út að keyra...
25. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? hvað ætlar þú að gera við menntunina og hvort finnst þér betra eða hvað finnst þér skemmtilegast sðurningar.
26. Hvenær ferðu að sofa? Milli 22 og 00
27. Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Á einhver að svara.....
28. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Ég endurtek síðasta svar...á einhver að svara
29. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Surviver og fullt af öðrum þáttum
30. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Lilju
31. Ford eða Chevy? uhhh donnow
32. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? 9 mínútur.

Hafið það sem allra, allra best...ég ætla að drífa mig í skólann....ekki það skemmtilegasta sem ég geri á þriðjudögum.....ekkert nema leiðinlegir tímar.

sunnudagur, september 25, 2005

humm.....5 tilgangslausar staðreyndir um mig.....
Ekki auðvelt það...here goes

1. Þegar mér líður illa þá treð ég ekki mat í mig eins og flestir, heldur eyði peningum.
2. Ég er sjónvarps sjúklingur af guðs náð og elska að fara í bíó.
3. Ég elska að horfa á stjörnurnar...get legið endalaust og starað út í geiminn.
4. Hef alltaf langað að sjá UFO og langað að fara til Roswell New Mexico.
5. Mér finnst hrikalega leiðinlegt að búa um rúm og hata að skúra.

Þannig er nú það.

mánudagur, september 19, 2005

Til Hamingju með afmælið Gunna mín

Já hún Gunna á afmæli í dag....orðin stór stelpa....Kossar og knús frá mér ******Smack******

Og vitið þið bara hvað er að byrja í kvöld........SURVIVER......æðislegt :)

Fékk bara næstum því bónorð í gær....ég meina...karlmenn eru ótrúlegir, einhver Kani sem ég hitti einu sinni í tvo tíma fyrir fimm árum er svo að deyja að hann bauðst til að flytja til Íslands fyrir mig....ég meina...sumir eiga bara bágt....en þetta eru útlendingarnir til í að gera fyrir mann á meðan Íslendingarnir vilja ekki einu sinni tala við mann....ég er alveg hætt að skilja.....Segi bara "Karlmenn....fuss"

Ég ætla bara að halda áfram að dreyma um dökkhærða Grikki sem dansa með flottum mjaðma hnykkjum í kringum mig....hummm....ekki slæmt.....

þriðjudagur, september 13, 2005

Það var verið að benda mér á að vera ekki svona helv*** down alltaf hreint hérna á blogginu...hvað get ég sagt...hef alltaf meira að segja þegar mér finnst allt ömurlegt...en ég skal reyna að vera hressari :)

Skrapp í bíó núna áðan, á strákana okkar...barasta fín mynd....Svolítið gróf...Íslendingar þurfa alltaf að fá útrás fyrir strípihneigð sína, En það er svo sem allt í lagi...bara nokkuð fyndin og skemmtileg mynd.

Fékk hina árlegu næturheimsókn frá einum af vinum mínum......alveg ótrúlegt að svona einu sinni á ári þá dreymir mig einn mjög góðan vin, og alltaf verðum við meira en vinir í draumnum. Alltaf sami vinurinn. Væri nú alveg til í að fá að dreyma einn dökkhærðan Grikkja...en því miður ræð ég ekki hvað mig dreymir...dem...

Jæja...ég ætla að fara að leggja mig....krosslegg fingurnar að mig dreymi eitthvað verulega spennandi þessa nóttina....

mánudagur, september 12, 2005

Líður betur í dag

Búin að komast að því að það er ekki hægt að lifa lífinu nema einn dag í einu...helvítis klúður það...en mér líður vel í dag...góður dagur, Kennarinn minn er rosa skylningsríkur og bara fínn dagur....gott að eiga svona daga inn á milli, búin að ákveða það að lifa einn dag í einu og kannski verður lífið ömurlegt á morgun og kannski ekki....en ekki í dag...dagurinn í dag er góður...hef áhyggjur af morgundeginum þegar að honum kemur...Ekki satt?

Var að horfa á King Kong (1933) í dag, þurfti að horfa á hana fyrir Kvikmyndartónlistartímann...rosa fín mynd...svolítið fyndið að horfa á hana :) svolítið augljóst að það er verið að leika við skjá...en auðvitað er þetta 70 ára gömul mynd þannig að þetta er bara cool mynd...verð nú samt að segja að ég vorkenndi greyið apanum.....hann vildi svo sem engum illt.....ja...át nokkra menn, en hvað er það á milli vina :)

laugardagur, september 10, 2005

Allt byrjað aftur

Stundum er eins og maður hafi aldrei farið út...eins og afslöppunin sem maður fékk sé bara þurrkuð út og hafi aldrei gerst....Lífið er byrjað á ný...skólinn, fjölskyldan og allt sem ég skildi eftir þegar ég fór út...verð að segja að mér tókst rosa vel að gleyma öllu heima....sakna náttúrulega alltaf íslands...hér á ég heima....en stressið sem ég skildi eftir er komið aftur, stundum er eins og ég muni einfalldlega ekki meika það!

Lenti í smá ævintýri þarna úti sem stóð í tvo daga...það eru komin mörg ár síðan ég lenti í ævintýri síðast....Ég vil það aftur...fólk er alltaf að segja mér að ég lifi í drauma heimi...að ég hafi alltof miklar kröfur...en það er bara ekki rétt...það eina sem ég vil er það sem allir aðrir í kringum mig hafa...afhverju eru það of miklar kröfur þegar ég bið um það en bara eðlilegt þegar allir aðrir eru að upplifa það. Stundum finnst mér eins og fólk í kringum mig sé að segja að ég eigi að sætta mig við það fyrsta sem ég get fengið því þannig sé lífið....það er ekki heldur rétt..

Mig langar bara að hverfa núna...í svona smá stund...versta er að maður verður alltaf að koma til baka og þá......................................................

Ætli ég verði ekki að fara að læra...ekki það að ég viti nokkuð hvað ég er að gera, verð bara að þykjast vita voða mikið, eins og ég hef gert síðustu ár...það hefur svo sem gengið ágætlega, fékk fínar einkunnir....ég veit ekki hvernig þar sem ég hef ekki hugmynd hvað ég er að gera....einn daginn á eftir að komast upp um mig og hvað geri ég þá...........................................................................

fimmtudagur, september 08, 2005

Jæja..Þá er maður kominn heim...Náði mér í smá pest svona rétt áður en við fórum heim...en er öll komin í lag núna...

Þetta var alveg snilldar ferð...Krít er alveg æðisleg og við gátum ekki fengið betra hótel.......Svo lenti Heiða litla í smá ævintýri...sem er alltaf gott fyrir heilsuna :)

Er orðin húkt á öllu sem fer alveg ógeðslega hratt....Gokart er bara geðveikt...verð bara að segja það...og Gummi...ég heimta rematch...

Var að setja inn myndir frá Krít....enjoy :)

Að lokum...fótboltastrákar+dansarar.....NAMM