Nú er illt í efni
Ég er að passa það voða vel að fá ekki panic attack!
Ég er ósköp hljóðlát manneskja, vil yfirleitt ekki láta bera mikið á mér og að tala fyrir framan hóp af fólki er eitthvað sem ég vil helst aldrei gera.
Ég var að fá kennsluáætlun fyrir íslensku tónlistarsöguna, 30% af lokaeinkun er þáttaka/umræður í tíma....hvað á að gera við fólk sem vill bara fylgjast með og taka eftir en ekki blaðra fyrir framan aðra...á bara að fella það fólk...ég tala aldrei í tíma og spyr helst ekki spurninga, tala frekar við kennarann eftir tíma í einrúmi, svo er 40% Ritgerð....ok það er allt í lagi, ég meika það...en svo eru 30% sem eftir eru fyrirlestur....hvað djö*** þarf alltaf að láta mann standa og tala...ég hata fyrirlestur og er það ein af ástæðunum sem ég fór EKKI í Háskóla íslands...ykkur finnst þetta kannski ekkert mál og eruð eflaust að hlæja að mér núna, en fyrir mér er þetta versta martröð ever...ég þurfti að halda fyrirlestur í fyrra og hélt að ég mundi deyja...aldrei verið eins stressuð og þar var bara kennarinn og tvær stelpur, sem eru ágætis vinkonur mínar, að hlusta....
ég ætla að reyna að fá aftur lit í andlitið...svolítið hvít núna og kannski troða kökkinum sem er í hálsinum aftur niður í maga......


